Lífið

Anníe Mist ólétt

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Annie Mist, Freyja Mist og Frederik Ægidius bíða eftir fjórða fjölskyldumeðliminum með mikilli eftirvæntingu.
Annie Mist, Freyja Mist og Frederik Ægidius bíða eftir fjórða fjölskyldumeðliminum með mikilli eftirvæntingu. Instagram

CrossFit-kempan Anníe Mist Þórisdóttir er ólétt af öðru barni sínu. Hún greindi frá tíðindunum á Instagram.

Svo virðist sem settur dagur sé 2. maí 2024 en fyrir eiga þau Anníe Mist og unnusti hennar, CrossFit-kappinn Frederik Ægidius, dótturina Freyju Mist Ægidius Frederiksdóttur sem fæddist árið 2020.

Hamingjuóskum hefur rignt yfir fjölskylduna á samfélagsmiðlum. Meðal þeirra sem hafa óskað parinu til hamingju er Katrín Tanja Davíðsdóttir, CrossFit-stjarna, sem skrifar við Instagram-færslu Anníe: „HJARTAÐ MITT. Bestu fréttir í heimi!!!!!.. lítið naut alveg eins og Kat frænka 🤭 ég elska ykkur svo mikið!!!!!!

Þrátt fyrir að eiga von á barni hefur Anníe Mist ekkert hægt á sér og í gær gátu aðdáendur fylgst með ströngum undirbúningi hennar fyrir Rogue Invitational stórmótið í Texas sem fer fram 27. til 29. október næstkomandi.

Anníe Mist hefur í tvígang staðið uppi sem heimsmeistari í CrossFit og var sú fyrsta til að hljóta titilinn hraustasta kona í heimi. Þá er hún eigandi líkamsræktarstöðvarinnar CrossFit Reykjavík þar sem hún æfir og þjálfar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.