Markaðurinn verið í „fýlu í langan tíma“ og vanmetinn um 37 prósent
![Greinandi Jakobsson Capital segir að hlutabréfamarkaðurinn sé „dramatísk skepna“ og æsingurinn oft og tíðum mikill; bæði upp og niður](https://www.visir.is/i/DCBACEFF36E9DAEF8CE00B205EE5E974BA26E13AFB177F8C3821BC7E341BE755_713x0.jpg)
Að meðaltali eru félögin sem Jakobsson Capital fylgir vanmetin um 36,5 prósent. „Markaðurinn er búinn að vera í gríðarlegri fýlu í langan tíma,“ segir í hlutabréfagreiningu. „Ólíklegt er að Seðlabankinn hækki vexti mikið meira“ en ósennilegt þykir að hlutabréfamarkaðurinn „taki mikið við sér áður en vextir lækka á ný.“