Lagið sem ber nafnið „Now and Then,“ mun koma út 2. nóvember næstkomandi á smáskífu ásamt laginu „Love Me Do“ sem var fyrsta útgefna lag Bítlana og kom út árið 1962. Greint var frá væntanlegri útgáfu skífunnar í sumar en nú er komin staðfestur útgáfudagur.
Lagið var skrifað af John Lennon áður en hann féll frá og með hjálp gervigreindar hefur leikstjóranum Peter Jackson, tekist að einangra rödd Lennon á upptöku frá 8. áratugnum. Það gerði Paul og Ringo kleyft að ljúka við lagið í fyrra.
Lagið inniheldur meðal annars gítarleik sem George Harrison tók upp fyrir nær þremur áratugum síðan, trommuleik Ringo, bassa McCartney, píanóleik og gítareinleik í minningu George Harrison sem lést árið 2001.
Bakröddum úr lögunum „Here, There and Everywhere,“ „Eleanor Rigby,“ og „Because“ var einnig blandað í nýjar bakraddirnar sem Paul McCartney og Ringo Starr syngja.
Næsta miðvikudag, daginn fyrir útgáfu lagsins, mun vera gefin út stuttmynd sem segir sögu upptökuferlisins. Stiklur úr henni má sjá hér.
„Þetta er síðasta lag, nokkurn tímann, með öllum fjórum Bítlunum. John, Paul, George og Ringo,“ sagði Ringo Starr í viðtali við AP.