GKR boðar endurkomu í öllum skilningi þess orðs Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. nóvember 2023 13:00 Rapparinn verður með sínu fyrstu tónleika hér á landi síðan árið 2019 um helgina. Þar spilar hann lög af nýrri plötu, þeirri fyrstu síðan 2018. Viktor Steinar Rapparinn Gaukur Grétuson, betur þekktur sem GKR, hyggst snúa aftur til landsins um helgina og troða upp á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í Kolaportinu næsta föstudagskvöld. Hann hyggst spila nýtt efni, lög af nýrri plötu sem er væntanleg snemma á nýju ári.
Rapparinn hefur undanfarin ár búið í Bergen í Noregi og ekki komið fram á slíkum tónleikum hér á landi síðan árið 2019. Þá eru fimm ár síðan hann gaf síðast út plötu og því um tímamót að ræða. Fyrsta lagið af plötunni, Snertingu við mig, er komið út. Aldrei verið eins stoltur af eigin efni „Mig langar að fólk geti upplifað nýju lögin mín á sinn eigin hátt og þannig myndað sér sínar eigin skoðanir. Þannig ég vil eiginlega ekki segja of mikið um innblásturinn en þetta er það næsta því sem ég hef komist því að gera tónlist sem ég er stoltur af,“ segir GKR í samtali við Vísi. Hann hefur verið duglegur að koma fram á tónleikum í Noregi síðan hann flutti þangað árið 2021. GKR hefur meðal annars gert lag með norska rapparanum Nossan eins og Vísir hefur fjallað um. „En tónleikarnir núna á Airwaves verða glænýjir. Ég mun flytja nýju lögin mín. Ég spilaði þau á Bylarm tónlistarhátíðinni í Osló og mótttökurnar voru fáránlega góðar. Líklega hef ég aldrei upplifað eins góðar mótttökur hjá tónleikagestum.“ Fíla Norðmennirnir íslensku textana? „Já! Og þeir syngja með. Ég fæ þá til að segja orðin fyrir lag, til dæmis „Hvað ertu að tala um?“ og svo þegar viðlagið kemur þá ýti ég þeim bara áfram og þau syngja með,“ segir rapparinn. „Síðast þegar ég gaf út plötu, Útrás árið 2018, þá var ég á niðurleið. Það er flókin saga og ég segi hana kannski síðar. En þá varð ég í raun ekki eins metnaðarfullur og ég hefði viljað vera og skaut sjálfan mig niður. Ég er samt ánægður með plötuna, þó mér finnist eins og hún hefði getað verið eitthvað meira.“ Rapparinn hyggst leyfa hlustendum að meta nýju plötuna á sínum eigin forsendum. Hét því að spila einn daginn á Airwaves GKR mun koma fram á Airwaves hátíðinni í Kolaportinu klukkan 23:00 á föstudagskvöld. Hann hefur aldrei spilað áður í Kolaportinu, enda var ekki komið svið þangað síðast þegar tónlistarmaðurinn kom fram á hátíðinni. Ertu spenntur? „Þetta hefur verið flókið ferli fyrir mig. Þetta eru persónuleg lög og það eru flóknar tilfinningar að baki þeim. Þannig að það að segjast vera spenntur væri einföldun fyrir mér,“ segir rapparinn hlæjandi. Hann segir að hátíðin eigi sérstakan stað í hjarta sínu og rifjar upp þegar hann fór fyrst á tónlistarhátíðina í menntaskóla. „Það var sturluð upplifun og ég hef alltaf elskað þessa hátíð síðan. Þá lofaði ég líka vinum mínum því sem voru þar með mér að þetta yrði ég þarna einn daginn uppi á sviði. Svo bara gerist það,“ segir rapparinn. Hann spilaði síðast á hátíðinni árið 2019. „Ég hugsa að ég hafi átt marga af mínum bestu tónleikum á Airwaves og ég hef ekki komið fram þar í fjögur ár, þannig að þetta verður keyrsla.“
Tónlist Mest lesið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið „Þetta er sem betur fer ekki upp á líf og dauða“ Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar Sjá meira