Lífið

Icelandair frum­sýnir nýjan einkennisfatnað

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Flugfélagið Icelandair tók nýjan einkennisfatnað í notkun í dag.
Flugfélagið Icelandair tók nýjan einkennisfatnað í notkun í dag. Icelandair

Flugfélagið Icelandair tók nýjan einkennisfatnað í notkun í dag. Breytingin er í takt við samfélagslegar breytingar og liðkaðar reglur félagsins sem voru kynntar árið 2019. Fólk getur valið hvernig það klæðist óháð kyni.

„Starfsfólk hefur nú mun meira val, hvort það vill klæðast pilsi eða buxum, skyrtu eða rúllukragapeysu, hælum eða flatbotna, með klút, slaufu eða bindi. Þannig er stefnan að fólk hafi meira svigrúm til að tjá sinn persónuleika með fatnaðinum,“ segir í tilkynningu félagsins. 

Áhöfn sem fór í heimsferð í lok október klæddist nýja einkennisfatnaðinum í ferðinni og varþví aðeins á undan frumsýningunni.Icelandair

Þá voru kynntar til sögunnar úlpur frá 66 norður og nýjar slæður, bindi og slaufur sem er afrakstur hönnunarsamkeppni sem haldin var í samstarfi við Listaháskóla Íslands.

Icelandair
Icelandair

Fylgja breytingum samfélagsins

Fimmtán ár eru liðin frá því að fráfarandi einkennisfatnaður var kynntur til sögunnar, árið 2008.

„En á þessum fimmtán árum hefur margt breyst, félagið hefur sameinað innanlands- og millilandaflugið, starfsfólki hefur fjölgað mjög og breyting hefur orðið í samfélaginu,“ segir í tilkynningunni

Í dag eru 2300 manns sem klæðast fatnaðinum við störf sín hjá Icelandair og eru störfin fjölbreytt. Flugfreyjur og -þjónar, flugmenn, starfsfólk Saga Lounge, fólk sem sinnir innritun á byrðingu á flugvöllum, og enn fjölbreyttari störfum á flugvöllum á landsbyggðinni. 

Icelandair
Icelandair
Icelandair

Fatnaðurinn þarf því að bjóða upp á fjölbreyttan og þægilegan fatnað fyrir öll kyn, fjölbreyttar líkamsgerðir, mismunandi veður ásamt því að uppfylla öryggiskröfur.

Enn fremur segir í tilkynningunni að félagið hélt vinnustofur og lagði fram kannanir fyrir starfsfólk:

„Úr þeirri vinnu komu mjög góðar upplýsingar og þemu sem unnið var eftir. Því næst var unnið úr hugmyndunum sem bárust og settur saman faghópur fólks sem starfar innan raða Icelandair en hefur einnig bakgrunn eða menntun í fatahönnun og textíl. Þannig var fatnaðurinn mótaður af fólkinu sem notar hann á hverjum degi.“

Icelandair
Icelandair
Icelandair

Gamli einkennisfatnaðurinn fær nýtt líf

Olino, framleiðandi fatnaðarins leggur mikla áherslu á sjálfbærni og eru fötin framleidd í Evrópu. Gamli fatnaðurinn mun fá framhaldslíf og liggja á borðinu mjög spennandi hugmyndir sem verða kynntar síðar.

Icelandair






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.