Lífið

Manna­kjöt vakti lukku á Hrekkja­vöku

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Um hundrað manns mættu til að hlusta á Magnús Jochum Pálsson lesa upp úr bókinni, neyta veiga og kaupa árituð eintök beint frá höfundi.
Um hundrað manns mættu til að hlusta á Magnús Jochum Pálsson lesa upp úr bókinni, neyta veiga og kaupa árituð eintök beint frá höfundi.

Útgáfu ljóðabókarinnar Mannakjöts var fagnað rækilega í útgáfuhófi á Tryggvagötu 10 á þriðjudag. Um hundrað manns mættu til að hlusta á rithöfundinn Magnús Jochum Pálsson lesa upp úr bókinni, neyta veiga og kaupa árituð eintök beint frá höfundi.

Húsið var þétt setið og mátti þar sjá fjölda þekktra nafna í hófinu. Hollywood-framleiðandinn Sigurjón Sighvatsson leit við í eiturgrænni úlpu. Hæstaréttarhjónin Markús Sigurbjörnsson og Björg Thorarensen létu líka sjá sig.

Þá voru ýmsir úr menningarlífinu mættir, þar á meðal rithöfundarnir Brynja Hjálmsdóttir, Pedro Gunnlaugur Garcia og Jakub Stachowiak. Bergþór Másson, annar Skoðanabræðra, kíkti við rétt eins og Óttar Kolbeinsson Proppé, fyrrverandi fréttamaður Stöðvar 2.

Bergþór Másson, Skoðanabróðir og athafnamaður, og Jóhannes Helgason, íslenskukennari.Aðsend
Jóhannes Helgason, Melkorka Embla Hjartardóttir, Gunnar Magnús Bergs og Óttar Kolbeinsson Proppé.Aðsend
Sigurjón Sighvatsson, Hollywood-framleiðandi, og Magnús Karel Hannesson, verslunareigandi. Aðsend
Magnús Jochum les úr Mannakjöti fyrir gesti.Aðsend
Ingólfur Hjörleifsson, auglýsingamaður til margra ára, og Eysteinn Þórðarson, hönnuður sem gerði kápu og myndskreytingar á Mannakjöti.Aðsend
Hjónin og lögfræðikanónurnar Björg Thorarensen, hæstaréttardómari, og Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar, ásamt Kristínu Nönnu Einarsdóttur, íslenskufræðingi.Aðsend
Hannes Kristinn Árnason, Victor Karl Magnússon og Gylfi Þorsteinn Gunnlaugsson.Aðsend
Arnar Geir Geirsson, Katrín Agla Tómasdóttir, Ása Bergný Tómasdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.Aðsend
Myndlistarkonan Berglind Erna Tryggvadóttir með rithöfundunum Jakubi Stachowiak, Birgittu Björg Guðmarsdóttur og Karólínu Rós Ólafsdóttur. Aðsend
Nýjasti gagnrýnandi Kiljunnar, Ingibjörg Iða Auðunardóttir, með þeim Daníel Frey Birkissyni og Guðmundi Atla Hlynssyni. Aðsend

Mannakjöt Magnúsar

Magnús Jochum Pálsson er 25 ára blaðamaður og rithöfundur. Hann hefur áður gefið frá sér bókina Óbreytt ástand árið 2018.

Ljóðabókin Mannakjöt hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar Íslenskra bókmennta í sumar.

Í umsögn dómnefndar sem veitti styrkinn sagði: „Mannakjöt er heilsteypt og úthugsuð ljóðabók sem vekur lesandann til umhugsunar um dökkar hliðar mannkynsins og hvernig kunni að fara fyrir jörðinni breyti mannfólkið ekki hegðun sinni."

Gestir hlýddu á upplestur úr Mannakjöti.Aðsend






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.