Lífið

Nóvemberspá Siggu Kling: Drekktu minna kaffi

Sigga Kling skrifar
hrutur

Elsku hrúturinn minn. Það eru eldingar í kring um þig! Þú getur fundið fyrir erfiðleikum að skipuleggja hlutina þótt að þú sért algjörlega með mastersgráðu í skipulagningu.

Hrúturinn er frá 21. mars til 19. apríl.

Pirringur nartar í þig og það er allskonar fólk sem þú elskar sem getur farið SVO í taugarnar á þér. Finndu allar þá leiðir sem þú getur til að styrkja kerfið þitt. 

Passaðu að gera ekki of mikið af því sem að þú ert vanur að gera eins og drekka of mikið kaffi, orkudrykki eða jafnvel vatn í miklum mæli og alls ekki mikið alkóhól. Þegar að þetta er komið inn hjá þér þá breytist lífssýn þín og þú höndlar allt margfalt betur. 

Það má líka segja að megrun og of mikill agi að gera þetta og hitt sem á að vera svo algjörlega frábært er kannski ekki það sem þú þarft á þessu á tímabili. Þú hefur sterka þörf að hafa þá sem þú elskar alveg við hjartað þitt. Þér gæti dottið í hug að fá þér gæludýr. Þú átt eftir að breyta út af vananum og skapa nýja ástríðu sem tengist góðvild og raunverulegri gleði. 

Klippa: Nóvemberspá Siggu Kling - Hrútur

Þú ert ekki að drepast úr því að treysta öðrum fyrir þínum innstu erfiðleikum, þú ert ekki einu sinni fyrir það að tala um erfiðleika. Það er engin ástæða úr fortíð sem er að hamla þér. Þú ert nefnilega að hugsa „af hverju líður mér svona?“ Og þá leitar hugurinn fram og til baka. Þér gæti dottið í hug að þér líkaði ekki einu sinni við makann þinn, en það er blekking hugans. 

Þegar að þú meðtekur þetta þá er bara góður andi yfir þér. Spennutímabilinu lýkur upp úr níunda nóvember og það verður svo stórkostlega skemmtilegt. Íhugaðu vel í hverju þú vilt fjárfesta.

Ekki taka áhættu að kaupa bíl, hús, föt eða eitthvað sem gæti gefið þér betri status ef þú getur ekki bara staðgreitt það. 

Þú færð það sem þig vantar því það er séð fyrir öllu í kring um þig.

  • Marlon Brando, leikari, 3. apríl
  • Eddie Murphy, leikari, 3. apríl
  • Robert Downey Jr., leikari, 4. apríl
  • Heath Ledger, leikari, 4. apríl
  • Jackie Chan, leikari 7. apríl
  • Thomas Jefferson, fyrrum forseti Bandaríkjanna, 13. apríl
  • Emma Watson, leikkona, 15. apríl
  • Charlie Chaplin, grínisti, 16. apríl





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.