Lífið

Töfrandi endur­fundir Lindu Pé í London

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Linda Pé og Jaime mættu stórglæsileg á viðburð í Lundúnum á dögunum.
Linda Pé og Jaime mættu stórglæsileg á viðburð í Lundúnum á dögunum. Linda Pé.

Linda Pétursdóttir, fegurðardrottning og athafnakona, átti töfrandi kvöldstund með fjölskyldu sinni og vinum úr fegurðarsamkeppninni Ungfrú heimur á glæsihótelinu The Sa­voy í Lund­ún­um í vikunni. 

Linda hlaut titillinn Ungfrú heimur þann 17. nóvember árið 1988 í Royal Al­bert Hall en á viðburðinum í Lundúnum hitti hún nokkrar af þeim konum sem tóku þátt í keppninni með henni fyr­ir um 35 árum.

Í myndskeiðinu hér að neðan má sjá þegar Linda var krýnd Ungfrú heimur.

„Algjörlega magnað að hitta þær í fyrsta sinn í 35 ár,“ skrifar Linda við mynd af hópnum sem kepptu fyrir hönd Mön, Bresku Jómfrúaeyjanna og Barbados.

Sællegar á svip.Linda Pé.

Prúðbúnar fegurðardrottningar

Hugrún Egilsdóttir, Ungfrú Ísland árið 2015, var einnig stödd á viðburðinum ásamt kærsta sínum, Jack Hes­lewood, Herra al­heim­ árið 2019. Parið opinberaði samband sitt árið 2022.

Íslensku fegurðardísinar voru glæsilegar að vanda. Linda klæddist fallegum dökkgrænum kjól og grænum hælaskóm með glitrandi steinum. Hugrún klæddist fallegum vínrauðum síðkjól og svörtum hælaskóm með slaufu úr glitrandi steinum. 

Kærasti Lindu, hinn spænski Jaime, lét sig ekki vanta og mætti með sinni konu klæddur svörtum smóking.

Linda Pé.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.