Lífið

Ljósir litir og létt­leiki á fal­legu heimili í Hafnar­firði

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Soffía Dögg aðstoðaði Önnu Rún að breyta um stíl á heimilinu í nýjasta þætti af Skreytum hús.
Soffía Dögg aðstoðaði Önnu Rún að breyta um stíl á heimilinu í nýjasta þætti af Skreytum hús.

Í fjórða þætti Skreytum hús heimsótti Soffía Dögg Garðarsdóttir Önnu Rún sem býr í Hafnarfirði ásamt börnum sínum með fallegu útsýni út á fjörðinn. 

Fjölskyldan var búin koma sér vel fyrir á heimilinu og sem þyrfti enga bretingu að mati Soffíu Daggar. Önnu Rún dreymdi um að breyta um stíl á heimilinu sem þær gerðu í sameiningu. Gefum Soffíu Dögg orðið.

Þættirnir verða sex rétt eins og í hinum seríunum og koma inn vikulega á Vísi og á Stöð2+.

Þáttinn í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan:

Fyrir- myndir

Stofan var mjög smekkleg og falleg fyrir. En þegar við fórum að rýna í hlutina þá var ég alltaf að horfa á stærri gluggann, sem var inni í borðstofunni og mér þótti hann í raun vera í röngu rými. Það væri mikið skemmtilegra að sitja í sófa og hafa kost á að horfa út um þennan glugga. 

Sama mátti segja um hina stofuna, sem var þá sjónvarpsherbergið líka, en þar var setið í sófa og bakinu snúið í fallegt útsýnið og í raun ekki næg sæti fyrir alla fjölskyldumeðlimi til þess að láta fara vel um sig. 

Létt og ljóst var það sem hana dreymdi um og við erum þá komin með plan fyrir næstu skref: heilmála allt saman og svissa stofunum, sófar fara þar sem borðstofan var og svo öfugt.

Eftir- myndir

Útkoman var alveg eins og ég sá fyrir mér, en bara aðeins betri! Eins og sést er rýmið orðið ljósara og léttara. 

það er alltaf nauðsynlegt að finna fallegt ljós yfir borðið og þetta dásemdarljós frá Bauhaus var að heilla mig alveg. Það er svona smá retrófílingur í því, en samt smá módern eða í það minnsta upplifi ég það þannig. Svo er rósettan að gera svo mikið með.

Snilldin er að nú er hægt að sitja í sófanum og njóta þess að horfa beint út á sjó, en Anna Rún lagði áherslu á að þetta væri meira kósí rými heldur en sjónvarpspláss.


Tengdar fréttir

Rómantískt ris­her­bergi fær nýtt út­lit

Í þriðja þætti Skreytum hús heimsótti Soffía Dögg Garðarsdóttir Önnu Lottu sem býr ásamt unnusta sínum, tveimur sonum og kettinum Esju í nýlegri íbúð í Reykjavík. 

Bleikt og notalegt hjá Binna Glee

Soffía Dögg Garðarsdóttir þáttastjórnandi Skreytum hús aðstoðaði raunveruleikastjörnuna Brynjar Stein, eða Binna Glee eins og flestir þekkja hann, í öðrum þætti af fjórðu þáttaröðinni sem fór í loftið á Vísi um helgina.

Liverpool-draumur varð að veruleika

Soffía Dögg Garðarsdóttir þáttastjórnandi Skreytum hús aðstoðaði tíu ára fótboltastelpu að breyta og bæta herbergið hennar í fyrsta þætti af fjórðu þáttaröðinni sem fór í loftið á Vísi á laugardaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.