Ólafur Stefánsson nýr þjálfari EHV Aue Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. nóvember 2023 11:58 Það þurfti tvo menn frá EHV Aue til að óska Ólafi til hamingju með starfið. Ólafur Stefánsson var í dag tilkynntur sem nýr þjálfari þýska b-deildarliðsins EHV Aue en félagið rak þjálfara sinn á dögunum eftir slaka byrjun á tímabilinu.
Ólafur var kynntur til leiks á miðlum þýska liðsins nú í hádeginu. Ólafur hefur reynslu af þjálfun en hann þjálfaði Valsliðið á sínum tíma og hefur verið aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins sem og aðstoðarmaður hjá þýska liðinu HC-Erlangen. Ólafur hætti sem aðstoðarþjálfari HC-Erlangen rétt fyrir tímabilið í haust. „Við erum mjög ánægðir með að fá til okkar í EHV handboltagoðsögn frá Íslandi. Við ræddum tvisvar sinnum við hann og eftir það vorum við sannfærðir um að hann væri rétti maðurinn fyrir okkur. Við erum sannfærðir um með hann sem aðalþjálfara og Philipp Brau sem aðstoðarþjálfara þá getum við náð markmiði okkar að halda okkur í deildinni,“ sagði íþróttastjórinn Stephan Swat í fréttatilkynningu félagsins. Ólafur gerir sjö mánaða samning við félagið eða út júní næstkomandi. Íslendingar hafa spilað með EHV Aue í gegnum tíðina en Sveinbjörn Pétursson hefur verið markvörður liðsins frá árinu 2020. Rúnar Sigtryggsson þjálfaði liðið líka í fjögur ár frá 2012 til 2016. EHV Aue vann sigur á TuS N-Lübbecke um helgina og kom sér þar með af botni B-deildarinnar en þetta var aðeins annar sigur liðsins á tímabilinu. EHV kom upp úr C-deildinni í vor eftir eins árs veru.
Þýski handboltinn Mest lesið Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Enski boltinn Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Fótbolti Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Elísabet byrjar á tveimur töpum Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar Handbolti „Okkur langar virkilega að vinna titla hérna“ Sport Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar „Veit ekki hvar on-takkinn er“ „Þetta bara svíngekk“ Sjötta tap Hauks og félaga í röð Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Hafa ekki tapað undanúrslitaleik í nítján ár Ætla ekki að bíða aftur í 24 ár Sveinn spilar í fimmta landinu Róbert hættir með Gróttu eftir tímabilið Dagur skilaði sínu fyrir Montpellier sem er komið áfram Elliði Snær frábær í góðum sigri Karabatic-ballið alveg búið Haukar fara til Bosníu Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins „Við vorum yfirspenntar“ Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni „Eins besta vörn sem við höfum spilað held ég“ „Frammistaða á alþjóðamælikvarða“ Haukar flugu inn í 8-liða úrslitin Sjá meira