Vilja upplýsa markaðinn betur um fasteignaþróunarverkefni Reita
![Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri fasteignafélagsins.](https://www.visir.is/i/221D0FC589CB102D8F54511E33002401D3147075748D8F092D5E2EAD5E5C0FC8_713x0.jpg)
Markaðurinn hefur ekki nógu góða innsýn í umfang þróunareigna Reita. Það er eitt af því sem læra má af samrunaviðræðum við Reginn, segir fjármálastjóri fasteignafélagsins, sem meðal annars á Kringluna og er með í deiliskipulagsferli allt að 418 íbúðir á því svæði.