Lífið

Snoop Dogg hættur að reykja

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Snoop Dogg tilkynnti í dag að hann ætli sér að hætta að reykja.
Snoop Dogg tilkynnti í dag að hann ætli sér að hætta að reykja. Getty/Jordan Naylor

Rapparinn Snoop Dogg hefur ákveðið að leggja jónuna á hilluna. Hann tilkynnti á Instagram-síðu sinni fyrr í dag að hann hefði ákveðið að hætta grasreykingum en hann er þekktur sem einn duglegasti grasreykingamaður jarðar.

Rappstjarnan á bakvið lög eins og Smoke the Weed, Smokin og Smoke Weed Everyday hefur lengi verið einn þekktasti talsmaður grasreykinga. Það liggur ekki fyrir hvort hann ætli sér að hætta að neyta maríjúana alfarið eða kjósa sér nýja innbyrðingaraðferð.

Snoop Dogg hefur verið tengdur við grasreykingar alveg frá því að hann braust fram í sviðsljósið. Hann hlaut fyrst vinsældir þegar hann kom fram á plötunni The Chronic úr smiðju Dr. Dre. Á plötuumslaginu var meðal annars maríjúanalauf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.