Lífið

Stjörnulífið: Gellur elska GusGus og Auðunn ást­fanginn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stjörnur landsins nutu liðinnar viku eins og þeim einum er lagið.
Stjörnur landsins nutu liðinnar viku eins og þeim einum er lagið.

Stjörnur landsins nutu liðinnar viku eins og þeim einum er lagið. Fernir stórtónleikar GusGus fóru fram í Eldborgarsal Hörpu um helgina. Sunneva Einars hlakkar til jólanna og Mari Jaersk óskar þess að Tómas Guðbjartsson taki á móti barni hennar einn daginn.

Ef Instagram-færslurnar birtast á ekki þá er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.

Fagnaði afmæli kærustunnar

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson birti myndasyrpu af kærustu sinni Cassöndu í tilefni af afmæli hennar um helgina. 

Skvísulæti í pleðri

Birna Rún Eiríksdóttir leikkona fór út á lífið um helgina og birti skvísumynd. 

GusGus í Hörpu

Pattra Sriyanonge áhrifavaldur skemmti sér vel á tónleikum hljómsveitarinnar GusGus um helgina.

Íris Tanja Flygenring leikkona reddaði pössun og skellti sér í Hörpu með vinkonu sinni, Mayu Einars.

Ljósin tendruð á jólakettinum

Erna Hrund Hermannsdóttir, vörumerkjastjóri og áhrifavaldur, átti ljúfa jólastund með fjölskyldunni í miðbænum. 

Sýningaropnun í miðbænum

Lista-og menningarlífið iðaði um helgina og var mikið um sýningaropnanir í bænum. Myndlistarmaðurinn Sigurður Sævar opnaði sýninguna Millilending í Portfolio Gallerí. 

Dagsferð til Rómar

Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður og athafnakona skellti sér í dagsferð til Rómar ásamt vinkonu sinni, Söru Reginsdóttur, flugfreyju og jógakennara.

Ást á sunnudegi

Helgi Ómarsson átti ljúfan sunnudag í faðmi fjölskyldunnar.

Afmælisferð til Valencia

Birgitta Líf Björnsdóttir naut sólarinnar á Spáni ásamt sambýlismanni sínm, Enok Jónssyni. 

Fæðingalæknirinn minn

Mari Jaersk fagnar endurkomu Tómasar Guðbjartssonar hjartalæknis úr sumarfríi. „Tilvonandi fæðingarlæknirinn minn en fyrst ætlar hann að hjálpa mér að hætta að reykja.“

Lestarpía í New York

Kristín Péturs flugfreyja fór í lest í New York um helgina. Sannkölluð lestarpía.

Besti tími ársins

Sunneva Einars býður jólahátíðina velkomna með því að klæðast rauðum kjól.

Sterkur kokkur

Stjörnukokkurinn Hrefna Sætran varð Íslandsmeistari í kraftlyftingum um helgina.

„Svo góður dagur með frábæru fólki. Djöfull er þetta skemmtilegt,“ segir Hrefna um daginn.

Ást í Köben

Elísabet Gunnar fagnaði tuttugu ára sambandsafmæli hennar og eiginmannsins, Gunnars Steins Jónssonar, um helgina í Kaupmannahöfn.

Afmælis æði

Gunnar Skírnir og tvíburabróðir hans Sæmundur, báðir þekktir fyrir raunveruleikaseríurnar Æði, fögnuðu afmælum sínum á dögunum. 


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Tónleikar, glamúr, óp og skvísulæti

Stjörnur landsins nutu liðinnar viku eins og þeim einum er lagið. Birgitta Líf leyfði óléttubumbunni að skína skært í London, stórsöngkonur landsins komu saman á Tinu Turner heiðurstónleikum í Hörpu og Gummi Kíró skellti sér í sunnudagspelsinn. 

Stjörnulífið: „Grikk eða tott?

Hrekkjavökugleðin var við völd um helgina og tóku stjörnur landins forskot á sæluna skelltu sér í búninga. Aðrir skemmtu sér á árshátíðum erlendis, héldu afmæli og fögnuðu ástinni, svo fátt eitt sé nefnt. Þá létu sumir pússa sig saman.

Stjörnulífið: „Dýrið gengur laust“

Tónlistarhátíðin Airwaves, árshátíðir erlendis og jólaundirbúningur var einkennandi fyrir liðna viku hjá stjörnum landins. Söngdrottning fagnaði áttræðisafmæli með stæl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.