Enski boltinn

Skoraði tíu mörk á móti ung­linga­liði Liver­pool

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Chido Obi-Martin er framtíðarstjarna í liði Arsenal ef hann heldur áfram á sömu braut.
Chido Obi-Martin er framtíðarstjarna í liði Arsenal ef hann heldur áfram á sömu braut. Getty/David Price

Chido Obi-Martin er nafn sem fótboltaáhugafólk á örugglega eftir að heyra mikið af í framtíðinni.

Strákurinn er bara fimmtán ára gamall en hann er þegar farinn að banka á dyrnar hjá aðalliði Arsenal. Mikael Arteta, knattspyrnustjóri Arsenak, kallaði hann á æfingar á þessu tímabili og hann hefur þegar skorað þrennu fyrir varalið Arsenal.

Strákurinn sýndi líka um helgina af hverju menn hjá Arsenal eru svona spenntir fyrir honum.

Obi-Martin fékk þá að spila með sínum jafnöldrum í sextán ára liði Arsenal. Hann hefur verið að spila meira með átján ára liðinu í vetur.

Nú var kallað á hann í sextán ára liðið og þar sýndi hann styrk sinn og hraða.

Liðið mætti Liverpool og Obi-Martin fór hreinlega á kostum. Sextán ára lið Arsenal vann nefnilega 14-3 sigur í leiknum og Obi-Martin skoraði sjálfur tíu af mörkunum.

Annað sem er merkilegt við Obi-Martin er að hann er að spila með sautján ára landsliði Danmerkur. Hann getur þó enn valið það að spila með enska landsliðinu því hann hefur tengingar til beggja þjóða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×