Enski boltinn

Komst að því að hann væri á einhverfurófi eftir ferilinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Greg Halford tæklar Jason Koumas.
Greg Halford tæklar Jason Koumas. getty/Gareth Copley

Fyrrverandi leikmaður í ensku úrvalsdeildinni var greindur með einhverfu á þessu ári.

Greg Halford lék 28 leiki með Reading, Sunderland og Wolves í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur komið víða við á ferlinum en leikur núna með utandeildarliði Hashtag United.

Halford hefur tjáð sig um einhverfugreiningu sem hann fékk í ár, 38 ára að aldri. Hann fékk greininguna eftir að sonur hans var greindur með einhverfu.

„Ég hef ekki sagt neinum í fótboltanum þetta en ég er á einhverfurófi,“ sagði Halford og viðurkenndi að hann hefði átt erfitt með að aðlagast þegar hann lék með Sunderland.

„Mér fannst mjög erfitt að falla inn í nýjan hóp og breyta því hvernig ég lifði, hvar ég bjó, vera ekki með fjölskyldunni minni eða kærustunni á þeim tíma. Það var mjög, mjög erfitt. Ég átti erfitt með samskipti. Eftir æfingar vildi ég aldrei fara í matsalinn því ég vildi ekki vera í kringum fólk. Mér leið skringilega og vildi bara fara heim. Það var allt annað að vera inni á vellinum. Það var minn staður og ég get stjórnað mér þar. En mér fannst mjög erfitt að vera í litlum hópum á þessum tíma.“

Halford hefur alls leikið með sautján félögum á ferlinum. Auk Englands lék hann í Skotlandi og á Írlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×