Jafntefli í toppslagnum í Tórínó Siggeir Ævarsson skrifar 26. nóvember 2023 21:45 Lautaro Martinez skoraði jöfnunarmark Inter í kvöld Vísir/Getty Tvö efstu lið ítölsku úrvalsdeildarinnar, Juventus og Inter, áttust við í stórleik helgarinnar en staðan á toppnum er óbreytt þar sem liðin skildu jöfn, 1-1. Dušan Vlahović kom heimamönnum yfir með glæsilegri afgreiðslu í teignum í fyrstu snertingu eftir fyrirgjöf frá Federico Chiesa á 27. mínútu. Skömmu síðar jafnaði Lautaro Martínez metin þar úr skyndisókn sem Marcus Thuram átti fasta fyrirgjöf inn á teiginn sem Martínez kláraði snyrtilega undir Szczęsny í marki Juventus. Fleiri urðu mörkin ekki. Inter sóttu mun meira en heimamenn vörðust vel eins og ítölsk lið eiga gjarnan til og niðurstaðan 1-1 jafntefli. Inter því áfram á toppi deildarinnar með 32 stig eftir 13 leiki og Juventus í öðru sæti með 30 stig. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti