Handbolti

Ómar Ingi drjúgur í sigri Magdeburg

Siggeir Ævarsson skrifar
Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk í dag
Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk í dag Vísir/Getty

Sigurganga Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni handbolta hélt áfram í dag þegar liðið lagði Balingen á útivelli 28-34.

Landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon var á meðal markahæstu leikmanna Magdeburg í dag og skoraði fimm mörk og þá bætti Janus Daði Smárason við þremur mörkum. Þriðji Íslendingurinn í herbúðum Magdeburg, Gísli Þorgeir Kristjánsson, er enn fjarri góðu gamni en hann fór úr axlarlið í sumar í leik Mag­deburg­ og Barcelona í undanúr­slit­um Meist­ara­deild­ar­inn­ar.

Magdeburg er á toppi deildarinnar, ásamt Fusche Berlin, en bæði lið eru með 23 stig eftir 13 leiki. Var þetta sjöundi sigurleikur liðsins í röð í deildinni og 17. sigur þess í röð í öllum keppnum.

Önnur úrslit dagsins:

Fusche Berlin - Hamburg 37-31

Rhein-Necker Löwen - Wetzlar 26-21




Fleiri fréttir

Sjá meira


×