Enski boltinn

Fjögurra ára sonur Fodens kominn með módelsamning

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Töffari. Ronnie Foden er gríðarlega vinsæll á Instagram þrátt fyrir að vera ekki enn byrjaður í skóla.
Töffari. Ronnie Foden er gríðarlega vinsæll á Instagram þrátt fyrir að vera ekki enn byrjaður í skóla.

Þrátt fyrir að vera aðeins fjögurra ára er Ronnie Foden, sonur enska landsliðsmannsins Phils Foden, kominn með módelsamning.

Foreldrar Ronnies, Phil og Rebecca Cooke, stofnuðu Instagram-síðu fyrir strákinn sem hefur safnað fjórum milljónum fylgjenda.

Ronnie hefur meðal annars sést klæðast fötum frá breska fataframleiðandanum Flanners á Instagram-síðunni. 

Ekki nóg með það heldur er strákurinn kominn með samning við Propel Talent Group sem er með marga hæfileikaríka einstaklinga á sínum snærum.

Ronnie vakti mikla athygli þegar hann fagnaði sigri Manchester City í Meistaradeild Evrópu í vor. Hann hefur síðan orðið eins konar óopinbert lukkudýr liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×