Mikil gleði var um helgina á frumsýningu leikritsins Fíasól gefst aldrei upp í Borgarleikhúsinu.
Söngleikurinn Fíasól gefst aldrei upp var frumsýndur á stóra sviði Borgarleikhússins liðna helgi. Fíasól er löngu orðin sígild í íslenskri bókmenntasögu og á sér aðdáendur á öllum aldri. Fjöldi þjóðþekktra einstaklinga létu sig ekki vanta á sýninguna. Þar má nefna Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur, Elizu Reid, Berg Ebba Benediktsson og Unni Ösp Stefánsdóttur, svo fáir einir séu nefndir.
Fíasól gefst aldrei upp byggir á rómuðum skáldverkum Kristínar Helgu Gunnarsdóttur. Í sýningunni leiðir leikstjórinn Þórunn Arna Kristjánsdóttir úrvals lið leikara og stóran og kraftmikinn barnahóp sem samanstendur af hvorki meira né minna en tuttugu og einu barni.
Stelpuskottið Fíasól er óstöðvandi gleðisprengja, full af orku en stundum löt, skarpgreind en fljótfær og svo hugmyndarík að foreldrum hennar stendur hreinlega ekki alltaf á sama.
Eins og Fíasól segir sjálf þá er ekki alltaf gott að vita hvort hugmyndir séu góðar eða slæmar þegar þær koma upp í kollinn!
Maríanna Clara Lúthersdóttir og Þórunn Arna Kristjánsdóttir semja leikgerðina og er Þórunn jafnframt leikstjóri sýningarinnar. Tónlistin er í höndum Braga Valdimars Skúlasonar.
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og börn.Anton BrinkBjörn Thors, Unnur Ösp Stefánsdóttir og börn.Anton BrinkEsther Talía Casey.Anton BrinkHjörtur Jóhann Jónsson.Anton BrinkAnton BrinkAnton BrinkHalldór Baldursson.Anton BrinkAnton BrinkAnton BrinkGagga Jónsdóttir ásamt prúðbúinni stúlkuAnton BrinkAnton BrinkHalla Hrund Logadóttir (móðir Hildar Kristínar Kristjánsdóttur sem fer með hlutverk Fíusólar)Anton BrinkHaraldur Ari Stefánsson, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir og Lóa.Salvör Nordal, umboðsmaður barna og Brynhildur Guðjónsdóttir Borgarleikhússtjóri.Anton BrinkRagnheiður Clausen og Jóhanna Vigdís ArnardóttirAnton BrinkAnton BrinkAnton BrinkKristín Helga Gunnarsdóttir, höfundur bókanna um Fíusól, fyrir miðju, með fjölskyldu sinni. Soffía Sóley Helgadóttir, dóttir Kristínar Helgu og fyrirmynd Fíusólar, er þriðja frá vinstri.Anton BrinkBergur Ebbi Benediktsson og Rán Ingvarsdóttir.Anton Brink Skúli Helgason og Anna Lind Pétursdóttir.Anton BrinkBirta Guðmundsdóttir og Hulda Pálsdóttir.Anton BrinkÞórunn Arna Kristjánsdóttir (leikstjóri Fíusólar) og Brynja Björnsdóttir.Anton BrinkAnton BrinkAnton BrinkSigyn Blöndal.Anton BrinkEliza Reid og Brynhildur Guðjónsdóttir, og börn.Anton Brink Sigurlaug Margrét Jónadóttir.Anton BrinkMargrét Tryggvadóttir og Karítas Freyja.Anton BrinkVédís Hervör Árnadóttir.Anton Brink
Leitin að Fíusól og félögum hennar er í fullum gangi þessa dagana en lokað hefur verið fyrir skráningar. Prufur standa nú sem hæðst en fjölmargir krakkar mættu og spreyttu sig nú rétt fyrir helgi á hlutverkunum. Verkið verður frumflutt í Borgarleikhúsinu næsta vetur.
Nú með vaxandi vormánuðum er haustdagskrá leikhúsanna óðum að taka á sig mynd. Ein af fyrirhuguðum frumsýningum næsta leikárs er fjölskyldusöngleikurinn Fíasól gefst aldrei upp, sem byggir á vinsælum bókaflokki Kristínar Helgu Gunnarsdóttur.