Stjórnmálamenn þurfa að hætta að „fikta í mikilvægustu innviðum“ okkar sagði Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, deildarforseti Við Háskólann á Bifröst, í Pallborðinu á Vísi í dag. Þar var verið að ræða niðurstöður PISA könnunarinnar sem birtar voru fyrr í vikunni.
Þættinum var skipt í tvennt og voru í fyrri hluta þáttarins þau Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, Sigríður Ólafsdóttir, dósent við menntavísindasvið HÍ og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, deildarforseti við Háskólann á Bifröst.
Ólína sagði að innan menntakerfisins væri annars vegar fagleg stefnumótun og hins vegar pólitísk stefnumótun. Það hafi síðustu ár verið margir ólíkir menntamálaráðherrar og hver þeirra hafi komið að verkefninu með sínar eigin hugmyndir. Samhliða því hafi verið of margar byltingar í íslensku menntakerfi í gegnum árin.
Hún sagði engan taka ábyrgð á vandamálinu. Eins og í hruni. Ábyrgðinni væri dreift. Það er ráðuneyti, sveitarfélög, skólarnir og margar ólíkar stofnanir. Það sé frumskógur sem þurfi að taka til í.

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, tók undir þetta og sagði umræðuna hafa verið mikið út og suður. Ábyrgðin væri dreifð og það væri mikilvægt að við værum samábyrg. Ef það eigi að vera margir sem koma að málinu þá verði allir saman að taka ábyrgð og byggja á því sem til er, eins og menntastefnunni sem er þegar til.
Þau fóru í þættinum yfir marga ólíka þætti sem þau telja geta hafa haft áhrif á niðurstöðurnar sem birtar voru í vikunni. Ólína sagði að það yrði að horfa á stöðu íslenskunnar almennt. Það sé of mikið andvaraleysi gagnvart þeim vanda og niðurstöðurnar séu ein hliðin af því þegar þjóð týnir tungumáli.
Þörf á nýrri Menntamálastofnun
Enskan sé of fyrirferðarmikil í námsefni, veitingastöðum, afþreyingu og í raun hvert sem sé litið.
Magnús Þór tók undir þetta og sagði vanta námsefni á íslensku. Einnig vanti þann stuðning sem kennarar fengu áður í Menntamálastofnun en að það væri von á tíðindum um það. Hann sagði umgjörðina verða að vera í lagi og að það yrði að ljúka þeirri vinnu og koma stofnuninni aftur á kopp.
Sigríður sagði í að börnum finnst gaman að takast á við verkefni. Að vera í flæði og það verði að gefa börnum viðgfangsefni sem tengjasg því sem efst er á baugi í dag. Það veðru að láta þau lesa texta og tala saman um það sem þau lesa og skrifa.
Hún sagði mikilvægt að samfélagið allt opni augun fyrir því að munurinn verður meiri með hverju árinu sem líður.
„Það má gera kröfur og á að gera kröfur,“ sagði Ólína.

Hún sagði barni ekki kennt að ganga með því að halda á því. Þannig væri skólagangan líka. Börn yrðu að fá að takast á við verkefni.
„Það má taka til að þessu leyti í kennsluháttum,“ sagði Ólína og að það ætti um börn og kennara.
„Verkefnið er að mennta fólk til að vera sjálfbjarga,“ sagði Ólína sem telur málið grafalvarlegt.
Hún sagðist hafa miklu meiri áhyggjur af lesskilningi en öðrum hlutum. Það sé mikill kynjahalli þar og ef það sé rétt að annar hver fimmtán ára unglingur ráði ekki við grunnfærni til lesskilnings þá sé að myndast hópur í samfélaginu með skert tækifæri í lífinu. Þau geti ekki unnið úr upplýsingum og auðveldara sé að ráðskast með þau í upplýsingaóreiðu. Það sé grundvallaratriði að meðtaka tungumálið og tjá sig á því.
Margt breyst á stuttum tíma
Ólína sagði margar breytingar hafa átt sér stað í menntakerfinu, en líka í íslenskum heimilum. Vandinn sé margþættur og það þurfi að mæta honum úr mörgum áttum, en markvisst.
Hún sagði þetta samfélagslegan vanda. Foreldrar séu þreyttir og hafi ekki tíma eða getu í að hugsa um börnin eða kenna þeim að lesa. Þá sé hátt hlutfall á leikskólum erlent starfsfólk sem tali ekki íslensku.

Sigríður var spurð að því hvað hafi farið úrskeiðis sagði hún að það yrði að líta á verkefnin. Þá verði einnig að hugsa til þess að það verði að byrja strax við fæðingu að huga að þeim stuðningi sem börn fá. Foreldrar fái bara ár í fæðingarorlof og svo eigi að koma börnunum fyrir í vistun í allt að átta klukkustundir á dag. Það sé ekki endilega besta leiðin.
Á sama tíma sagði hún mikilvægt að muna að börnum finnist gaman að takast á við verkefni. En sagði verkefnin verða að höfða til þeirra og vera í takt við það það sem er að gerast hverju sinni.
Í seinni hluta pallborðsins var rætt við þrjá fyrrverandi menntamálaráðherra, Illuga Gunnarsson, Lilju Alfreðsdóttir, núverandi menningar-og viðskiptaráðherra og Þorgerði Katrín Gunnarsdóttur formann Viðreisnar. Illugi var menntamálaráðherra frá 2013 til 2017, Þorgerður frá 2004 til 2009 og Lilja 2017 til 2021.