Lífið

Stór­lax í stoðtækjum selur glæsivillu með sund­laug og bíó­sal

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Húsið var teiknað af Kjartani Sveinssyni arkitekt árið 1984.
Húsið var teiknað af Kjartani Sveinssyni arkitekt árið 1984.

Össur Kristinsson, stofnandi stoðtækjafyrirtækisins Össur hf., hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt við sjávarsíðuna á Kársnesi í Kópavogi á sölu. Ásett verð er 260 milljónir.

Um er að ræða 480 fermetra einbýlishús á þremur hæðum við Sæbólsbraut 42 í Kópavogi. Húsið var teiknað af Kjartani Sveinssyni arkitekt árið 1984 og endurhannað og stækkað árið 2001.

Húsinu hefur verið vel við haldið síðastliðin ár.Eignamiðlun

Í lýsingu eignarinnar á fasteignavef Vísis kemur fram að gengið sé inn á miðhæð hússins sem er búin rúmgóðu eldhúsi, björtum og opnum stofum. Þaðan er útgengt á svalir með útsýni yfir Fossvogsdal og út Skerjafjörðinn.

Á jarðhæðinni er glæsileg 12,5 metra sundlaug, heitur pottur, búningsklefi, sturta og snyrting. Auk þess er  er tómstundarými, heimabíósalur, tvöfaldur bílskúr og tvær geymslur á hæðinni. 

Lóðin er öll hin glæsilegasta með hlöðnum veggjum, gróðri og miklum svölum bæði sjávarmegin og framan við hús. 

Húsið er á friðsælum stað við sjávarsíðuna á Kársnesi.Eignamiðlun
Mikil lofthæð er á efri hæðinni þar sem loftið er bogadregið.Eignamiðlun
Glæsilegt útsýni yfir Fossvoginn og að Skerjafirðinum.Eignamiðlun
Eignamiðlun
Sundlaugin er 12,5 metrar að lengd.Eignamiðlun
Mósaík flísar prýða heita pottinn og vegginn í kring.Eignamiðlun

Tengdar fréttir

Einstakt að hafa starfað með stofnanda Össurar hf.

„Það var einstakt að fá að vinna með stofnanda Rafnar, Össuri Kristinssyni. Hann er sá sami og stofnaði Össur hf. og er mín fyrirmynd sem uppfinningamaður,“ segir Svavar Konráðsson vélaverkfræðingur en þrátt fyrir að vera aðeins 33 ára gamall, hefur Svavar verið nokkuð áberandi í frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.