Tækifæri CRI þrefaldast á skömmum tíma
![Björk Kristjánsdóttir, forstjóri CRI, segir að áframhaldandi vöxtur á núverandi starfsemi kalli ekki á frekari fjármögnun frá fjárfestum. „Verkefnin sem unnið er að skila okkur tekjum.“](https://www.visir.is/i/11EE4B9FCAE6B173F5E6624B9C4C94268D56C5EAC32662C9EF7D673981DB7949_713x0.jpg)
Íslenska tæknifyrirtækið Carbon Recycling International (CRI) hefur selt hinu þýska P1 Fuels búnað til framleiðslu á rafeldsneyti sem notað verður meðal annars fyrir akstursíþróttir. Forstjóri CRI segir að þau tækifæri sem fyrirtækið hafi til skoðunar hafi þrefaldast á skömmum tíma.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/D7516388167D14A8E6C11FCF19BA254FFF8974AA68D15A91ED0DCC12F968617F_308x200.jpg)
Fyrrverandi bankastjóri Landsbankans kemur inn í stjórn CRI
Stokkað hefur verið upp í stjórn íslenska tæknifyrirtækisins Carbon Recycling International (CRI) og þá hefur Sigurlína Ingvarsdóttir, sjálfstætt starfandi ráðgjafi og fjárfestir, tekið við sem stjórnarformaður en hún hefur setið í stjórn CRI frá því vorið 2021 þegar félagið Eyrir Invest kom inn í hluthafahóp CRI sem leiðandi fjárfestir.
![](https://www.visir.is/i/91AEA07081878C554140D3D771F426B5C7D0C078E334EFFE7829BA1112EC67DC_308x200.jpg)
CRI hættir við áform um skráningu vegna óróa á mörkuðum
Íslenska tæknifyrirtækið Carbon Recycling International (CRI), sem framleiðir metanól úr koltvísýringi og vetni, hefur horfið frá fyrri áformum um skráningu á Euronext Growth markaðinn í Osló í Noregi. Unnið er nú að öðrum leiðum til að styðja við áframhaldandi vöxt fyrirtækisins, sem er meðal annars í eigu fjárfestingarfélagsins Eyris Invest, og gert er ráð fyrir að þeirri fjármögnun ljúki síðar á árinu.