Harvey Elliott skaut Liverpool á toppinn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Harvey Elliott skoraði sigurmark Liverpool í dag.
Harvey Elliott skoraði sigurmark Liverpool í dag. Justin Setterfield/Getty Images

Liverpool skaust á topp ensku úrvalsdeildarinnar með 2-1 útisigri gegn tíu mönnum Crystal Palace í dag.

Gestirnir í Liverpool voru sterkari aðilinn stærstan hluta leiksins, en gekk illa að skapa sér færi lengst af. Þeir sluppu með skrekkinn eftir hálftíma leik þegar Virgil van Dijk var dæmdur brotlegur innan vítateigs, en eftir skoðun myndbandsdómara kom í ljós að Will Hughes hafði brotið á Wataru Endo í aðdraganda vítaspyrnudómsins og því varð ekkert af vítaspyrnu heimamanna.

Heimamenn fengu þó loksins vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik þegar brotið var á Jean-Philippe Mateta innan vítateigs. Mateta fór sjálfur á punktinn og skoraði af miklu öryggi framhjá Allison í marki gestanna.

Áfram gekk illa hjá Liverpool að skapa sér færi. Leikurinn opnaðist þó mikið á 75. mínútu þegar Jordan Ayew stöðvaði skyndisókn gestanna í fæðingu og nældi sér um leið í sitt annað gula spjald í leiknum og það með rautt. 

Ayew var varla genginn af velli þegar Liverpool-menn voru búnir að nýta sér liðsmuninn og Mohamed Salah jafnaði metin fyrir gestina með sínu 200. marki fyrir félagið og sínu 150. í ensku úrvalsdeildinni.

Salah var svo aftur á ferðinni á fyrstu mínútu uppbótartíma þegar hann lagði boltann út á Harvey Elliott sem tryggði gestunum sterkan sigur með hnitmiðuðu skoti fyrir utan teig. Remi Matthews, sem kom inn í markið fyrir meiddann Sam Johnstone á 87. mínútu, kom engum vörnum við og sigur Liverpool þar með í höfn.

Með sigrinum lyftir Liverpool sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar með 37 stig eftir 16 leiki, einu stigi meira en Arsenal sem á leik síðar í dag. Crystal Palace situr hins vegar í 14. sæti með 16 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira