Tónleikarnir hefjast klukkan 12:15 stundvíslega en þeir fara fram í Stakkahlíð, húsnæði Menntavísindasviðs HÍ. Þeir eru liður í Háskólatónleikaröðinni en á efnisskrá er jólatónlist Ellu Fitzgerald en jasssöngkonan sú sendi frá sér jólaplötur sem teljast sígild.
Rokkdoktorinn Arnar Eggert Thoroddssen aðjúnkt er umsjónarmaður tónleikaraðarinnar og hann segir að tónleikarnir verði í Skála sem er gegnt Hámu á fyrstu hæð.

„Með tónleikunum verður húsnæðið kvatt en sviðið er að færa sig yfir á Sögu á nýju ári. Það verða því bæði gleði- og angurværðartár á hvörmum er þær Rebekka og Ragnheiður hjálpa okkur að kveðja Stakkahlíðina með ljúfum en þó ærslafullum tónum! Njótum því saman með vetrarsól í sinni og glóð í geði!“
Arnar Eggert kann sér vart læti og er kominn í sannkallaðan jólagír. Segist hann styðjast við slagorðið „Háskóli fyrir alla - Tónlist fyrir alla“ og er myndast við að endurspegla það í dagskránni.
Tónleikunum verður einnig streymt og hægt verður að horfa á þá síðar í upptökuformi. „Hvort sem þú ert í borginni, úti á landi eða úti í heimi getur þú notið hinna fögru tóna Háskólatónleikaraðarinnar og upplifað stemninguna í skólanum. Allir velkomnir á staðinn og aðgangur gjaldfrjáls.“