Lífið

Siggi Þór og Sonja orðin for­eldrar

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Siggi Þór og Sonja eignuðust sitt fyrsta barn í nóvember síðastliðnum.
Siggi Þór og Sonja eignuðust sitt fyrsta barn í nóvember síðastliðnum. Aðsend

Leikarinn Sigurður Þór Óskarsson, eða Siggi Þór eins og hann er kallaður, og unnusta hans Sonja Jónsdóttir vefhönnuður eignuðust dreng 14. nóvember síðastliðinn.

Parið greindi frá gleðifregnunum í sameiginlegri færslu á Instagram. 

„14.11. mánuður með þér,“ skrifaði parið og deildi fallegum myndum af frumburðinum. Hamingjuóskum hefur ringt yfir nýbökuðu foreldrana síðustu klukkustundirnar. 

Parið hefur verið saman í nokkur ár og trúlofuðu þau sig árið 2020 í miðjum heimsfaraldri. 

Siggi hefur gert garðinn frægan á fjölum leikhúsanna sem og í hinum ýmsu sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Þar á meðal í kvikmyndinni, Allra síðasta veiðiferðin, spennuþáttaröðinni Ófærð, og í leikritinu, Emil í Kattholti, í hlutverki vinnumannsins Alfreðs.


Tengdar fréttir

Siggi Þór og Sonja eiga von á barni

Leikarinn Sigurður Þór Óskarsson, eða Siggi Þór eins og hann er kallaður, og unnusta hans Sonja Jónsdóttir vefhönnuður eiga von sínu fyrsta barni í nóvember. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.