Fjórði sigurinn í röð hjá læri­sveinum Dyche

Smári Jökull Jónsson skrifar
Michael Keane horfir á eftir boltanum í netið en hann skoraði seinna mark Everton í leiknum í kvöld.
Michael Keane horfir á eftir boltanum í netið en hann skoraði seinna mark Everton í leiknum í kvöld. Vísir/Getty

Everton vann í kvöld sinn fjórða sigur í röð í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið lagði Burnley á Turf Moore.

Sean Dyche knattspyrnustjóri Everton fékk góðar móttökur hjá stuðningsmönnum Burnley fyrir leikinn en hann var knattspyrnustjóri félagsins í mörg ár og er afar vinsæll á Turf Moore.

Hann gerði þó sínu gamla félagi enga greiða í dag. Everton hefur verið á góðu skriði undanfarið og héldu því áfram í dag. Amadou Onana kom Everton í 1-0 á 19. mínútu og Michael Keane bætti öðru marki við sex mínútum síðar.

Everton var betri aðilinn í leiknum í dag og Burnley skapaði fá færi. Mörkin urðu ekki fleiri í síðari hálfleik og lærisveinar Sean Dyche fögnuðu góðum 2-0 sigri.

Þetta er fjórði sigurleikur Everton í röð og liðið hefur haldið hreinu í öllum þessum leikjum. Everton er komið upp í 16. sæti og það þrátt fyrir að tíu stig hafi verið dregin af félaginu í síðasta mánuði vegna brota á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar.

Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í leikmannahópi Burnley en hann á við meiðsli að stríða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira