Lífið

„Lífið er jafn fal­legt og það er miskunnar­laust“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Aldís Amah minnir á mikilvægi þess að hlúa að sjálfum sér og öðrum yfir hátíðirnar.
Aldís Amah minnir á mikilvægi þess að hlúa að sjálfum sér og öðrum yfir hátíðirnar. Vísir/Vilhelm

Aldís Amah Hamilton leikkona biðlar til fólks að taka utan um fólkið sitt og skapa dýrmætar minningar í stað þess að týna sér í jólastressi og fullkomnunaráráttu yfir hátíðirnar. 

„Þessir tímar eru dásamlegir fyrir sum og ofsalega erfið fyrir önnur. Lífið er jafn fallegt og það er miskunnarlaust og ég bið ykkur að týna ykkur ekki í jólastressi og fullkomnunaráráttu,“ segir Aldís í færslu á Instagram.

Hún hvetur fólk til að sýna aðgát og skilning þar sem margir upplifa alls kyns ólíkar tilfinningar á þessum tíma árs. 

„Látið gott af ykkur leiða og munum að samkennd, samhugur og væntumþykja er betri en allar gjafir og allar skreytingar sem til eru,“ segir Aldís:

„Og hlúið að ykkur sjálfum líka. Það er ekki hægt að hella úr tómum bolla,“ bætir hún við.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.