Chelsea snéri dæminu við og fer í undan­úr­slit eftir vítaspyrnukeppni

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Djordje Petrovic stóð vaktina í marki Chelsea og varði eina vítaspyrnu gegn Newcastle.
Djordje Petrovic stóð vaktina í marki Chelsea og varði eina vítaspyrnu gegn Newcastle. Darren Walsh/Chelsea FC via Getty Images

Chelsea tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum enska deildarbikarsins í knattspyrnu með sigri gegn Newcastle í vítaspyrnukeppni.

Gestirnir í Newcastle tóku forystuna á 16. mínútu þegar Callum Wilson slapp einn í gegn eftir röð mistaka í vörn Chelsea. Enski framherjinn þakkaði pent fyrir sig og kláraði vel framhjá Djordje Petrovic í marki Chelsea.

Það stefndi allt í að þetta yrði eina mark leiksins, en varamaðurinn Mykhailo Mudryk reyndist hetja Chelsea þegar hann kom liðinu í vítaspyrnukeppni með marki á annarri mínútu uppbótartíma og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegara.

Cole Palmer og Conor Gallagher skoruðu úr fyrstu tveimur spyrnum Chelsea og Callum Wilson gerði slíkt hið sama úr fyrstu spyrnu Newcastle. Kieran Trippier misnotaði hins vegar spyrnu sína sem fór vel framhjá markinu.

Christopher Nkunku skoraði úr þriðju spyrnu Chelsea áður en Bruno Guimaraes skoraði úr þriðju spyrnu gestanna frá Newcastle. Líkt og liðsfélagar sínir nýtti Mykhailo Mudryk spyrnu sína af miklu öryggi, en það var að lokum markvörðurinn Djordje Petrovic sem tryggði Chelsea sæti í undanúrslitum þegar hann varði spyrnu Matt Ritchie með miklum tilþrifum.

Niðurstaðan því 4-2 sigur Chelsea í vítaspyrnukeppninni eftir 1-1 jafntefli í venjulegum leiktíma. Chelsea er þar með á leiðinni í undanúrslit á kostnað Newcastle, en Fulham og Middlesbrough tryggðu sér einnig sæti í undanúrslitum fyrr í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira