Innlent

Óttast að þjóðin fái leiða á Grind­víkingum og fjari undan hjálp­seminni

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Siggeir og fjölskylda fengu strax að dvelja hjá mágkonu hans og segist hann vera í betri stöðu en margir aðrir Grindvíkingar. Hann biðlar til landsmanna um að hafa langlundargeð því Grindvíkingar þurfi stuðning og skilning í mun lengri tíma en áður var talið.
Siggeir og fjölskylda fengu strax að dvelja hjá mágkonu hans og segist hann vera í betri stöðu en margir aðrir Grindvíkingar. Hann biðlar til landsmanna um að hafa langlundargeð því Grindvíkingar þurfi stuðning og skilning í mun lengri tíma en áður var talið.

Fjölskyldufaðir sem býr í Grindavík óttast að þjóðin muni fá leið á Grindvíkingum og að fjara muni undan hjálpseminni sem var svo mikil í upphafi. Nú sé ljóst að Grindvíkingar muni þurfa á stuðningi og skilningi að halda lengur en áður var talið. Margir viti ekki einu sinni hvar þeir muni búa á nýju ári.

Siggeir F. Ævarsson, fjölskyldufaðir sem búsettur er í Grindavík, segist vera í mun betri málum en margir Grindvíkingar. Mágkona Siggeirs bauð fjölskyldunni hans 10. nóvember, þegar rýma þurfti Grindavík með hraði, að flytja inn til sín á neðri hæðina og þar hefur fjölskyldan verið síðan. Siggeir vakti á mánudagskvöldið fram eftir nóttu yfir vefmyndavélum og fréttum af eldgosinu til að sjá hvað yrði um bæinn hans. Hann leyfir sér ekki að hugsa langt fram í tímann en er vondaufur um að Grindvíkingar geti snúið aftur í bæinn bráðlega og því séu húsnæðismálin efst í huga Grindvíkinga.

„Það er allur tilfinningaskalinn í gangi hjá fólki en mér finnst alltaf fleiri og fleiri orðnir bara reiðir og pirraðir því það er alveg ljóst að þetta mun taka langan tíma og það gengur rosa hægt að greiða úr ýmsum málum og það er fólk sem er kannski búið að flytja fjórum sinnum og fólk sem er mjög óöruggt og jafnvel án tekna þannig að fólk er orðið langeygt eftir einhverjum alvöru lausnum, ekki skammtímalausnum eða einhverju, hvað eigum við að segja, sem hefur lítil áhrif á þeirra hag.“

Siggeir segist gríðarlega þakklátur almenningi fyrir hjálpsemina en biðlar um leið til hans um langlundargeð því ljóst sé að Grindvíkingar muni þurfa hjálpina lengur.

„Við höfum fundið fyrir gríðarlegum stuðningi úr öllum áttum, við Grindvíkingar, heilt yfir, og maður er þakklátur fyrir það en maður er kannski svona pínu hræddur um, það er hugsun aftarlega í kollinum, að fólk muni fá leið á okkur á einhverjum tímapunkti og segja bara jæja, Getið þið ekki hætt þessu væli en við munum þurfa á stuðningi að halda lengur og skilningi.“

Grindvíkingar þurfi festu og öryggi í húsnæðismálum.

„Það eru mjög margir í skammtímalausnum. Fólk er í einhverjum íbúðum fólks sem er erlendis tímabundið en það eru margir sem eru ekki með vissu um hvar þeir verða á nýju ári.“


Tengdar fréttir

Segir mikilvægt að Grindvíkingar fái andrými

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Grindvíkingur segir mikilvægt að stuðningur stjórnvalda við Grindvíkinga haldi áfram þrátt fyrir að styttist vonandi í að þeir geti farið að fara heim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×