Hjónin Christian og Bridget Ziegler hafa skotist upp á stjörnuhimin Repúblikana á ógnarhraða en virðast nú vera að hrapa eins og kulnaðar halastjörnur á tvöföldum hraða.
Christian var í ársbyrjun valinn til forystu Repúblikana í ríkinu, í aðdraganda forsetakosninga. Bridget er ein af stofnendum hreyfingarinnar „Moms for Liberty“ sem hefur á stuttum tíma laðað að sér 130.000 meðlimi. Hreyfingin er íhaldsöm í meira lagi, hún berst fyrir bókabanni í skólum, þykir stjórnast af kynþáttahatri og andstyggð á réttindum hinsegin fólks.
Valdafíkn þeirra hefur stundum verið líkt við hjónin sem margir þekkja úr sjónvarpsþáttunum „House of Cards.“
Christian var í haust sakaður um að hafa nauðgað æskuvinkonu sinni. Hún hefur um árabil stundað kynlíf með hjónunum en segir að dag einn hafi húsfrúin ekki mætt og þá hafi hún ekki viljað fara ein í bólið með bóndanum. Hann hafi ekki hlustað á það og nauðgað æskuvinkonu sinni. Hann hefur nú verið rekinn úr embætti í Repúblikanaflokknum og sætir rannsókn vegna nauðgunarkæru.
Á sama tíma er þess krafist að Bridget víki úr skólastjórn í Sarasota þar sem hún hefur setið í áratug. Hún þvertekur fyrir það þrátt fyrir að allir stjórnarmeðlimir hafi samþykkt að hún skuli hverfa á braut.
Andstæðingar hennar segja að að öllu jöfnu komi fólki ekki við hvað annað fólk geri í svefnherberginu eða í frístundum sínum, en kona sem berjist af slíkum ákafa sem Bridget gegn mannréttindum annars fólks geti ekki sýnt af sér slíka hegðun.
Samtökin sem Bridget stofnaði; Moms for Liberty, segjast berjast af krafti gegn innrás vinstriaflanna í bandarískt skólakerfi og hafa komist til nokkurra áhrifa innan Repúblikanaflokksins. Þau biðu þó talsvert afhroð í skólastjórnarkosningum sem haldin voru um allt land í nóvember og er það talið til marks um dvínandi ítök þeirra.