Innlent

41 ein­stak­lingur eldri en hundrað ára á landinu

Atli Ísleifsson skrifar
Flestir einstaklingar hundrað ára og eldri eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu.
Flestir einstaklingar hundrað ára og eldri eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Getty

Fjörutíu og einn einstaklingur er hundrað ára eða eldri á landinu í dag. Elsti núlifandi einstaklingurinn, sem búsettur er á Íslandi, er 106 ára kona, fædd árið 1917, og er hún búsett á Suðurlandi.

Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár sem hefur tekið saman upplýsingar um elstu íbúa landsins.

„Konur eru í meirihluta þeirra sem hafa náð 100 ára aldri eða alls 31 á meðan það eru 10 karlar sem eru 100 ára og eldri. Alls eru 17 einstaklingar 100 ára, þar af 14 konur og 3 karlar.

Þeir einstaklingar sem eru yfir 100 ára eru alls 17 konur en 7 karlar. Ef við skoðum sérstaklega hvert ár þá eru 10 konur og 6 karlar 101 árs, 1 kona er 102 ára og 3 konur 103 ára. Þá eru 2 konur 104 ára, 1 karl 105 ára og ein kona er 106 ára,“ segir á vef Þjóðskrár.

Þegar horft er á landshluta má sjá að flestir einstaklingar 100 ára og eldri eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu eða 30 talsins.

Fjöldi einstaklinga 100 ára og eldri eftir árum

Hér má sjá fjölda einstaklinga 100 ára og eldri 1. desember ár hvert eftir kyni frá 2004 til dagsins í dag.

Aldursbil landsmanna

Til að skoða samanburð á aldri einstaklinga sem eru búsettir á Íslandi er hægt að sjá fjölda einstaklinga eftir aldursbilum hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×