Lífið

Tekur and­lega vel­líðan fram yfir skoðanir annarra

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ástrós leggur áherslu á andlega vellíðan á nýju ári.
Ástrós leggur áherslu á andlega vellíðan á nýju ári.

Áhrifavaldurinn og dansarinn Ástrós Traustadóttir hefur lagt línurnar fyrir árið með persónulegri markmiðasetningu. Hún birti lista á samfélagsmiðli sínum þar sem andleg vellíðan og persónulegar áskoranir eru í forgrunni.

Nú þegar nýtt ár er gengið í garð strengja fjölmargir áramótaheit til þess að setja sér markmið og ná einbeitingu í sínum verkefnum og lífinu almennt.

Ástrós leggur áherslu á andlega vellíðan og ætlar sér að rækta hana með því að hugleiða daglega, forðast neikvæða orku og vera meira í núinu.

Sem áhrifavaldur má ætla að skoðanir annarra geti verið hluti af lífi þess. Og ætlar Ástrós sér að einblína minna á hvað öðrum finnst.

Fjárhagslegt markmið Ástrósar er góð og gild regla, að leggja til hliðar og velja gæði frekar en magn.

Síðast en ekki er svefninn á lista og mikilvægur fyrir góða andlega og líkamlega heilsu. Ástrós ætlar sér að fara að sofa ekki seinna en klukkan 22 og vakna þess í stað snemma.

Hér má sjá lista Ástrós í heild sinni:

  • Einblína minna á skoðanir annarra
  • Bæta húðumhirðu 
  • Forðast neikvæða orku
  • Ferðast
  • Hugleiða daglega
  • Fara að sofa klukkan 22. 
  • Gera lista to do lista, og fara eftir honum
  • Velja gæði fram í yfir magn
  • Fara út fyrir þægindarammann
  • Leggja pening til hliðar
  • Vera morgunmanneskja
  • Vera meira í núinu
  • Lesa bækur - skrolla samfélagsmiðla
Skjáskot/Ástrós Trausta

Ástrós er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt í raunveruleikaþáttunum LXS og sem dansari í sjónvarpsþáttunum Allir geta dansað sem báðir voru sýndir á Stöð 2.

Í spilaranum hér að neðan má sjá brot úr þætti LXS þegar vinkonur Ástósar komu henni að óvöru með glæsilegu steypiboði. 


Tengdar fréttir

Frægir fjölguðu sér árið 2023

Það er ávallt mikið gleðiefni þegar börn koma í heiminn. Hér að neðan má sjá yfirferð yfir nokkur kríli þjóðþekktra landsmanna sem komu í heiminn á árinu 2023 og Vísir greindi frá.

Það sem þú vissir ekki um LXS stelpurnar

Önnur þáttaröð raunveruleikaþáttanna LXS hefja göngu sína á miðvikudaginn á Stöð 2. Í þáttunum verður fylgst með lífi samfélagsmiðlastjarnanna í gegnum lífsins ólgusjó. 

„Enn að kynnast nýjum líkama og því hvernig mér finnst best að klæða mig“

Samkvæmisdansarinn, raunveruleikastjarnan og ofur skvísan Ástrós Traustadóttir hefur farið í gegnum ýmis tímabil í tískunni. Í dag er hún nýbökuð móðir og sækir meira í jarðtóna liti en áður ásamt því að vanda vel valið á þeim flíkum sem hún fjárfestir í. Ástrós er viðmælandi vikunnar í Tískutali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.