Snorri valdi tuttugu leikmenn til æfinga hér á landi en hópurinn hóf æfingar á milli jóla og nýárs. Tveir yngstu mennirnir, hinir 21 árs gömlu Þorsteinn Leó Gunnarsson og Andri Már Rúnarsson, ferðast ekki með hópnum til Austurríkis, þar sem Ísland spilar vináttulandsleiki á laugardag og mánudag.
„Andri og Þorsteinn Leó verða eftir að þessu sinni. Það eru margir í þeirra stöðum, við erum ekki undirmannaðir þar eins og er,“ sagði Snorri fyrir æfingu í Safamýri í dag. Báðir geta leikið í stöðu vinstri skyttu, þó ólíkir séu, og Andri auk þess sem miðjumaður. Á EM fara hins vegar Aron Pálmarsson, Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson, Haukur Þrastarson og Janus Daði Smárason, sem leyst geta þessi hlutverk.
Vildi geta nýtt krafta Donna
Snorri valdi Kristján Örn Kristjánsson, Donna, en þessi öfluga, örvhenta skytta hefur átt við meiðsli að stríða:
„Ég vildi hafa þrjár örvhentar skyttur með, þrátt fyrir að Donni hafi verið að glíma við einhver meiðsli undanfarið. Ég vildi hafa smá breidd þar,“ sagði Snorri sem er einnig með Ómar Inga Magnússon og Viggó Kristjánsson. Hann bætti við:
„Ég tel þetta vera okkar átján bestu leikmenn, sem passa vel saman og passa inn í það sem við erum að gera. Svo vitum við náttúrulega aldrei hvað gerist á löngu og ströngu móti.“
Ekki að sjá að Elvar hafi misst af síðustu vikum
Elvar Örn Jónsson hefur verið í kapphlaupi við tímann til að ná mótinu, eftir að hafa tognað í kviðvöðva, og Gísli Þorgeir Kristjánsson byrjaði að spila að nýju í síðasta mánuði eftir að hafa farið í aðgerð vegna axlarmeiðsla í sumar.
„Þeir hafa báðir verið flottir. Elvar kom seinna inn í þetta og er nýbyrjaður en það er ekki að sjá að hann hafi verið frá í 5-6 vikur. Auðvitað verðum við samt að hafa varann á þegar menn eru að stíga sín fyrstu skref eftir meiðsli,“ sagði Snorri.
„Gísli er búinn að vera „full force“ með okkur en það segir sig sjálft að hann er ekki sá maður sem kemur til með að skjóta lengst frá markinu fyrir okkur, en þeir sem þekkja vel til vita að hann hefur aðra eiginleika sem við viljum klárlega hafa með okkur,“ bætti hann við.