Enski boltinn

„Erfitt fyrir Virgil að líta illa út en hann náði því“

Dagur Lárusson skrifar
Virgil Van Djik.
Virgil Van Djik. Vísir/getty

Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, var að vonum ánægður með sigur síns liðs gegn Arsenal í FA-bikarnum í dag.

Eftir leikinn var hann spurður út í fjarveru Virgil Van Djik en hann var ekki í leikmannahópi Liverpool. Svar Klopp var heldur fyndið.

„Það er erfitt fyrir Virgil að líta illa út, en hann náði því einhvern veginn“.

Með svarinu var Klopp að tala um það að fjarvera fyrirliðans hafi verið vegna veikinda og því ætti hann að vera klár í slaginn fyrir næsta leik.

Svar Klopp má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×