Væng­brotið Man Utd flaug á­fram í bikarnum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Diogo Dalot kom Man United á bragðið í kvöld.
Diogo Dalot kom Man United á bragðið í kvöld. Richard Sellers/Getty Images

Það má segja að í kvöld hafi Davíð mætt Golíat en Wigan hefur mátt mun fífil sinn fegurri. Liðið situr um þessar mundir í 18. sæti League 1, ensku C-deildarinnar, með 27 stig eða fjórum fyrir ofan fallsæti. Á sama tíma hefur Man United vissulega átt erfitt uppdráttar en liðið er um þessar mundir í 8. sæti úrvalsdeildar.

Erik ten Hag, þjálfari gestanna frá Manchester, stillti upp það sem mætti segja að væri hans sterkasta lið en þar verður að taka með í reikninginn að alls vantaði Victor Lindelöf, Harry Maguire, Lisandro Martínez, Tyrell Malacia, Luke Shaw, Sofyan Amrabat, Mason Mount, Christian Eriksen, Amad, Casemiro, Anthony Martial, Antony og Jadon Sancho. 

Leikurinn byrjaði fjörlega þar sem bæði lið fengu færi til að koma boltanum í netið. Það gekk þó ekki fyrr en á 22. mínútu þegar bakvörðurinn Diogo Dalot skrúfaði boltann í hornið fjær eftir sendingu frá Marcus Rashford.

Gestirnir fengu fleiri færi til að bæta við mörkum í fyrri hálfleik en fundu ekki leið framhjá Sam Tickle í marki Wigan. Næst því að skora var Alejandro Garnacho - sem lék á hægri vængnum að þessu sinni - þegar hann kom inn á völlinn og lét vaða en knötturinn small í þverslánni.

Staðan 1-0 í hálfleik og þannig var hún framan af síðari hálfleik þó svo að gestirnir hafi áfram skapað sér ágætis færi. Á endanum féll Bruno Fernandes í teignum eftir viðskipti sín við varnarmann heimaliðsins. Vítaspyrna dæmd og Bruno sjálfur fór á punktinn. 

Hann skoraði úr spyrnunni og fór langleiðina með því að tryggja Man United sæti í 4. umferð ensku bikarkeppninnar, elstu bikarkeppni í heimi.

Gestirnir reyndu að bæta við mörkum og hefðu á góðum degi gert það en xG (vænt mörk) liðsins var upp á 4.22. Það dugði þó aðeins fyrir tveimur mörkum í dag en leiknum lauk með 2-0 sigri Manchester United. Ten Hag hefði vart getað óskað eftir betri drætti í 4. umferð en liðið mætir annað hvort Newport County sem leikur í ensku D-deildinni eða Eastleigh sem leikur deild neðar í E-deildinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira