Spá töluverðum rekstrarbata hjá VÍS
![Nýtt verðmat Jakobsson Capital á VÍS tekur ekki tillit til sameiningar við Fossa fjárfestingabanka í ljósi þess að ársreikningur sameinaðs félags hefur ekki verið birtur.](https://www.visir.is/i/9A5949F807D9CB5826277FBE770D2B08F601D262A23AF41DD68C8BAC8FDF27A0_713x0.jpg)
Greiningafyrirtækið Jakobsson Capital reiknar með töluverðum rekstrarbata hjá VÍS á árinu 2024. „Það er gert ráð fyrir lægra kostnaðarhlutfalli en töluverður kostnaður var í ár vegna sameiningar og annarra einskiptisliða. Sömuleiðis ætti toppi hagsveiflunnar að verða náð. Allt útlit er fyrir að það hægist á verðbólgunni sem mun hjálpa til við að lækka tjónahlutfallið. Iðgjöld dagsins í dag eru til að tryggja tjón framtíðar,“ segir í verðmati.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/5BF35DBC9BCE6E9422F7E436C382DA009B7D74D40C8365753948F93A9127788B_308x200.jpg)
Mikill meirihluti hluthafa VÍS samþykkti kaup á Fossum
Mikill meirihluti hluthafa VÍS hefur samþykkt tillögu stjórnar tryggingafélagsins að kaupa Fossa fjárfestingabanka. Þriðji stærsti hluthafi félagsins, lífeyrissjóðurinn Gildi, hafði lagst gegn kaupunum í aðdraganda fundarins.
![](https://www.visir.is/i/8739FDA9EAC4A1241C9C1CC605384DC50B666C01A26ACDA267ACFD10624D8413_308x200.jpg)
Stjórn VÍS reynir að útskýra verðmiða Fossa fyrir hluthöfum
Stjórn Vátryggingafélags Íslands hefur komið því á framfæri við hluthafa að verðmatið á Fossum fjárfestingabanka taki hvorki tillit til samlegðaráhrifa né þess að hlutirnir sem eigendur Fossa í sínar hendur séu óframseljanlegir í 36 mánuði frá afhendingu.
![](https://www.visir.is/i/78A83F79ED2FB706DF93875D23C797978228A9DA47F16B7FDD70922C9B8BB81F_308x200.jpg)
Samlegð af samruna VÍS og Fossa nemi allt að 750 milljónum á ári
Áætlað er að samlegð af samruna VÍS og Fossum fjárfestingabanka nemi 650-750 milljónum króna á ári og komi inn að fulla eftir árið 2025. Gert er ráð fyrir að langtíma arðsemismarkmið hækki úr 1,5 krónum á hlut í yfir 2,5 krónur á hlut vegna samlegðar og möguleika til að hraða uppbyggingu fjárfestingarbanka og eignastýringar, samkvæmt áætlunum stjórnenda félaganna.
![](https://www.visir.is/i/2C5E842E0C4C713AA30442AC916370880176DE63E1638CE432B1CBEA03BA3360_308x200.jpg)
Forstjóri SKEL ekki á þeirri skoðun að verðmiði Fossa sé of hár
Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL fjárfestingafélags, sem er næststærsti hluthafi VÍS, segist ekki vera á þeirri skoðun að fjárfestingabankinn Fossar sé verðmetinn of hátt í fyrirhuguðum samruna við tryggingafélagið. Hann telur að „strategísk tækifæri“ geti falist í sameiningu félaganna.