Liverpool og Chelsea mætast í úr­slitum deildarbikarsins

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Luis Diaz skoraði mark Liverpool
Luis Diaz skoraði mark Liverpool Mike Hewitt/Getty Images

Liverpool er komið í úrslitaleik enska deildarbikarsins eftir 1-1 jafntefli gegn Fulham í kvöld. Fyrri leikur liðanna endaði 2-1 og Liverpool vinnur einvígið því samanlagt 3-2.

Chelsea varð fyrst til að tryggja sig í úrslitin með stórsigri gegn B-deildarliði Middlesborough í gærkvöldi. Þetta verður í annað sinn á þremur árum sem Chelsea og Liverpool mætast í úrslitum deildarbikarsins en liðin léku til úrslita í bæði FA- og deildarbikarnum árið 2022. 

Báðir leikir enduðu með 0-0 jafntefli og sigri Liverpool eftir vítaspyrnukeppni.

Í leik kvöldsins var það Luis Diaz sem opnaði markareikning Liverpool, hann tók boltann niður með bringunni eftir góða skiptingu yfir völlinn frá Jarrell Quansah, brunaði í átt að marki og skaut boltanum í nærhornið framhjá Bernd Leno, markverði Fulham.

Joe Gomez komst nálægt því að skora sitt fyrsta mark fyrir Liverpool í kvöld þegar langskot hans hafnaði í þverslánni í upphafi seinni hálfleiks.

Andreas Pereira svaraði því fyrir Fulham með stangarskoti skömmu síðar eftir góða skyndisókn. Fulham sóttu áfram að marki Liverpool og Issa Diop jafnaði leikinn á 77. mínútu. Heimamenn héldu áfram að ógna alveg fram að síðasta flauti en tókst ekki að skora annað mark og knýja fram framlengingu. 

Lokaniðurstaða 1-1 jafntefli í leiknum, 3-2 sigur Liverpool í einvíginu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira