Haaland sneri aftur í þægi­legum sigri City

Smári Jökull Jónsson skrifar
Erling Haaland kom inn sem varamaður fyrir Kevin De Bruyne í dag en Norðmaðurinn hefur verið frá vegna meiðsla undanfarið.
Erling Haaland kom inn sem varamaður fyrir Kevin De Bruyne í dag en Norðmaðurinn hefur verið frá vegna meiðsla undanfarið. Vísir/Getty

Manchester City vann öruggan sigur á Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum hans í Burnley í kvöld. Norðmaðurinn Erling Haaland sneri aftur á völlinn eftir meiðsli.

Kevin De Bruyne var í byrjunarliði City í dag og Erling Haaland var mættur á varamannabekkinn eftir fjarveru vegna meiðsla. Það var hins vegar Argentínumaðurinn Julian Alvarez sem kom City á bragðið í dag. Hann skoraði tvö mörk með stuttu millibili í fyrri hálfleiknum. Alvarez fagnar 24 ára afmæli sínu í dag og gaf sjálfum sér heldur betur góða afmælisgjöf.

Staðan í hálfleik var 2-0 en strax í upphafi síðari hálfleiks gekk hinn spænski Rodri frá leiknum með þriðja marki City eftir sendingu frá Phil Foden.

Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley en var tekinn af velli á 59. mínútu í stöðunni 3-0. Erling Haaland kom inn af varamannabekknum fyrir Kevin De Bruyne á 71. mínútu en sá norski hefur ekki spilað síðan 6. desember.

Undir lokin skoraði Ameen Al Dakhil sárabótamark fyrir Burnley sem dugði þó skammt. Lokatölur í kvöld 3-1 og City fer því aftur upp í annað sæti deildarinnar en liðið er jafnt Arsenal að stigum en með betri markatölu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira