Enski boltinn

Segir að Mainoo minni sig á Seedorf

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Samherjar Kobbies Mainoo fagna honum eftir sigur Manchester United á Wolves.
Samherjar Kobbies Mainoo fagna honum eftir sigur Manchester United á Wolves. getty/Marc Atkins

Maður gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni var hinn átján ára Kobbie Mainoo, átján ára leikmaður Manchester United. Fyrrverandi leikmaður liðsins líkti honum við mikla hetju eftir sigurinn á Wolves.

Mainoo kom United til bjargar á Molineux í gær en hann skoraði sigurmark liðsins þegar sjö mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Skömmu áður hafði Pedro Neto jafnað í 3-3 fyrir Wolves sem virtist vera búið að tryggja sér stig þrátt fyrir að lenda tvisvar tveimur mörkum undir. En Mainoo var á öðru máli.

Mainoo skoraði með góðu skoti fyrir utan vítateig eftir að hafa leikið á nokkra leikmenn Úlfanna. Rio Ferdinand, fyrrverandi leikmaður United, sagði að taktarnir sem Mainoo sýndi hafi minnt sig á leikmann sem hann mætti nokkrum sinnum á ferlinum, Clarence Seedorf.

„Ég var í rusli og svo kemur Kobbie Mainoo með augnablik sem við höfum séð í unglingaliðunum áður,“ sagði Ferdinand.

„Yfirvegunin sem þessi strákur sýnir á þessu stigi var áberandi í þessum leik. Í yngri liðunum leit hann alltaf út fyrir að vera klassaleikmaður og að færa það yfir í aðalliðið án nokkurra vandræða er merki um leikmann sem á bjarta framtíð fyrir höndum. Hann skilur kröfurnar sem eru hér, söguna og allt.“

Ferdinand líkti Mainoo svo við Seedorf sem átti frábæran feril með Ajax, Real Madrid, Inter og AC Milan.

„Ég er ekki að segja að hann sé sami leikmaður eða með sömu hæfileika en hann minnir mig á Seedorf. Það hvernig hann smokrar sér framhjá mönnum í þröngum stöðum, skýlir boltanum og notar líkamann,“ sagði Ferdinand um Mainoo hefur alls leikið tólf leiki fyrir aðallið United og skorað tvö mörk.

Næsti leikur United er gegn West Ham United á Old Trafford á sunnudaginn. Liðin eru í 6. og 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en West Ham er einu stigi á undan United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×