Hojlund skoraði þriðja deildarleikinn í röð í sigri

Hojlund fagnar með liðsfélögum sínum.
Hojlund fagnar með liðsfélögum sínum. Vísir/Getty

Rasmus Hojlund skoraði þriðja  deildarleikinn í röð er Manchester United hafði betur gegn West Ham á Old Trafford.

United vann Wolves á mjög dramatískan hátt á fimmtudagskvöldið þar sem Kobbie Mainoo skoraði sigurmarkið í blálokin á meðan West Ham gerði jafntefli gegn Bournemouth á heimavelli.

Daninn Rasmus Hojlund var á skotskónum gegn Wolves í miðri viku sem og í dag þar sem hann skoraði fyrsta mark leiksins á 23. mínútu þegar hann fékk boltann rétt fyrir utan teig, lék á einn varnarmann áður en hann þrumaði boltanum meðfram jörðinni og í netið. Staðan orðin 1-0 og þannig var hún í hálfleik.

Það tók United ekki langan tíma að skora annað mark í seinni hálfleiknum heldur kom það strax á 49. mínútu þegar Garnacho skoraði. Staðan orðin 2-0.

Garnacho var síðan aftur á ferðinni á 84. mínútu og gerði út um leikinn en það var það Scott McTominay sem gaf stoðsendinguna. Staðan orðin 3-0 og það urðu lokatölur.

Eftir leikinn er United komið með 38 stig í sjötta sæti deildarinnar en með sigrinum fór liðið yfir West Ham sem er nú í sjöunda sætinu með 36 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira