Erlent

Haley biður um aukna vernd

Samúel Karl Ólason skrifar
Nikki Haley bindur miklar vonir við að kjósendur Repúblikanaflokksins í heimaríki hennar í Suður-Karólínu gefi framboði hennar byr undir báða vængi þann 24. febrúar.
Nikki Haley bindur miklar vonir við að kjósendur Repúblikanaflokksins í heimaríki hennar í Suður-Karólínu gefi framboði hennar byr undir báða vængi þann 24. febrúar. AP/Charles Krupa

Nikki Haley, sem berst enn við Trump um tilnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í nóvember, hefur óskað eftir vernd frá lífvarðasveit forseta Bandaríkjanna (e. Secret service). Ástæðan ku vera sú að henni hefur borist alvarlegar hótanir að undanförnu.

Hún staðfesti við blaðamann Wall Street Journal í gærkvöldi að sótt hefði verið um aukna vernd og sagði hún nokkur „vandamál“ hafa litið dagsins ljós, án þess að fara nánar út í hvað hún ætti við.

Hún sagði þó að ekkert myndi stöðva sig í baráttunni gegn Trump.

Í síðustu viku reyndi kona að hlaupa upp á svið til hennar í Suður-Karólínu og þá var lögreglan nýlega send heim til hennar í svokölluðu „Swatting“, þar sem einhver hringir í Neyðarlínuna og segir alvarlegan glæp vera að eiga sér stað.

Þetta hefur ítrekað leitt til þess að þungvopnaðir lögregluþjónar ryðjast inn á heimili fólks og hefur fólk jafnvel verið skotið til bana.

Í frétt WSJ segir að mögulega spili störf hennar varðandi Íran hjá Sameinuðu þjóðunum inn í en yfirvöld þar hafa verið sökuð um að skipuleggja banatilræði í Kanada og í Bandaríkjunum.

Sjá einnig: Vítisengill og morðingi sakaðir um tilraun til launmorða fyrir Íran

Framboð hennar hefur ekki enn svarað fyrirspurnum um nákvæmlega hvað leiddi til áðurnefndrar umsóknar til heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna, þar sem ákvarðanir um hvort fólk fái vernd lífvarðasveitar forsetans eru teknar.

Lífverðir forsetans vernda forsetann og varaforsetann, auk þess sem þeir vernda hátt setta embættismenn, ef tilefni þykir til. Þá geta þeir einnig verndað forsetaframbjóðendur.

Haley er síðasti mótframbjóðandi Trumps innan Repúblikanaflokksins sem á einhvern möguleika á að sigra hann en líkurnar á því þykja litlar sem engar. Fregnir hafa borist af því að það hafi reitt Trump verulega til reiði að Haley hafi ekki þegar hætt baráttu sinni.

Trump sigraði hana með afgerandi hætti í bæði Iowa og New Hampshire en næsta forval flokksins fer fram í Suður-Karólínu þann 24. febrúar. Það er heimaríki Haley og var hún ríkisstjóri þar um tíma.


Tengdar fréttir

Langar viðræður um landamærin og hernaðaraðstoð skila „dauðu“ frumvarpi

Öldungadeildarþingmenn úr báðum flokkum Bandaríkjaþings birtu í gær nýtt frumvarp um öryggi á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð til Úkraínu og Ísrael. Frumvarpið var samið eftir langar viðræður en ef þingmönnum tekst að fá það samþykkt í öldungadeildinni þykir líklegt að það verði ekki svo gott sem tekið til umfjöllunar í fulltrúadeildinni.

Endurtekning á síðustu kosningum í kortunum

Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, vann nokkuð öruggan sigur gegn Nikki Haley í forvali Repúblikanaflokksins í New Hampshire í gær. Kjósendur í ríkinu eru þekktir fyrir að vera óútreiknanlegir en þeir komu ekki á óvart og eru líkurnar á því að Trump mæti Joe Biden, forseta, í kosningunum í nóvember orðnar töluvert meiri.

Trump með öruggan sigur í New Hamps­hire

Donald Trump sigraði forval Repúblikana í New Hampshhire með rúmum helmingi atkvæða. Það færir hann nær því að verða aftur frambjóðandi flokksins til forsetakosninga sem fara fram í nóvember á þessu ári.

Vonast eftir afgerandi sigri gegn Haley

Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, vonast eftir yfirgnæfandi sigri í forvali Repúblikanaflokksins í New Hampshire í dag. Hann vonast til þess að sigurinn verði svo afgerandi að hann geri út af við mótframboð Nikki Haley og annarra frambjóðenda.

Ron DeSantis dregur framboð sitt til baka

Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, er hættur við að bjóða sig fram til embættis Bandaríkjaforseta. Hann lýsir yfir stuðningi við Donald Trump sem fulltrúa Repúblikana í forsetakosningunum sem fram fara í nóvember

Skaut fast á Trump, sem ruglaðist á henni og Pelosi

Nikki Haley, forsetaframbjóðandi í Repúblikanaflokknum, velti í gær vöngum yfir því hvort Donald Trump gæti setið annað kjörtímabil sem forseti Bandaríkjanna, eftir að hann ruglaðist ítrekað á henni og Nancy Pelosi, fyrrverandi þingforseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, í ræðu sem hann hélt á föstudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×