Breiðfylking stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins hefur verið múlbundin gagnvart fjölmiðlum í hálfan mánuð. Stíft hefur verið fundað með Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara. Lítið hefur hins vegar spurst út af gangi viðræðna.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er nokkur sátt um samningstíma til fjögurra ára og ekki langt á milli samningsaðila varðandi launaliðinn. Hins vegar gangi erfiðlega að ná saman um forsendur samninganna, það er að segja hvað þurfi að ganga upp á samningstímanum til að samningarnir standi, eða verði sagt upp.
Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar mættu til fundar við oddvita ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum síðdegis í dag til að fara yfir þann pakka sem ríkisstjórnin er tilbúin að setja fram til að liðka fyrir kjaraviðræðum.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir fundinn hafa verið þann fyrsta milli ráðherra og forystufólks allrar verkalýðshreyfingarinnar, bæði á almenna og opinbera markaðnum.
„Við höfðum auðvitað hitt fulltrúa breiðfylkingarinnar sameiginlega núna í janúarmánuði. Ég hafði átt fundi með forystufólki opinberu heildarsamtakanna. Þetta er fyrsti sameiginlegi fundurinn þar sem líka komu fleiri ráðherrar,“ sagði Katrín. Samtalið hefði aðeins dýpkað á þessum fundi.
Verkalýðshreyfingin hefur lagt áherslu á að í skiptum fyrir mjög hóflegar launahækkanir auki stjórnvöld framlög í svo kölluð tilfærslukerfi eins og barna og húsnæðisbætur.
„Auðvitað var ekki neitt endanlegt lagt fram á þessum fundi. En okkur gafst aðeins tækifæri til að dýpka samtalið um útfærslur og mögulega aðkomu stjórnvalda. Eins og ég hef ítrekað sagt liggur fyrir algerlega skýr vilji okkar til að greiða fyrir kjarasamningum sem styðja verðbólgumarkmið og sem geta skapað hér forsendur til að lækka vexti. Um það erum við öll sammála inni í þessu herbergi,“ sagði Katrín Jakobsdóttir að fundi loknum.
Dregur til tíðinda fljótlega

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir ríkisstjórnina ekki hafa upplýst um neinar upphæðir á þessum fundi. Forysta verkalýðshreyfingarinnar hafi hins vegar gert grein fyrir stöðu viðræðna og hver lykillinn væri að lausninni að þeirra mati.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar vildi ekkert segja eftir að fundinum lauk annað en „ég held að ég sé í fjölmiðlabanni.“ En það var fremur þungt yfir Ragnari Þór sem vildi ekki svara því hvort viðræðurnar við SA væru að ganga upp.
„Við höldum bara fundarhöldum áfram á morgun. Það hlýtur að draga til tíðinda fljótlega,“ sagði formaður VR.