Woolworths er stærsta verslanakeðja Ástralíu og hefur, ásamt helsta keppinaut sínum Coles, um 65 prósent markaðshlutdeild á matvöruverslanamarkaðnum. Fyrirtækin hafa bæði verið sökuð um okur og hafa stjórnendur Woolworths verið kallaðir fyrir ýmsar þingnefndir vegna málsins.
Fyrirtækið sætir einnig rannsókn af hálfu samkeppnisyfirvalda.
Á mánudaginn birti Australian Broadcasting Corporation þátt um rannsókn miðilsins á viðskiptaháttum Woolworths og Coles en auk þess að hafa verið sökuð um okur hafa fyrirtækin einnig verið ásökuð um óheiðarleika gagnvart bændum og birgjum.
Blaðamaðurinn Angus Grigg ræddi við innanbúðamenn, sérfræðinga og yfirmenn beggja verslanarisanna en sagði viðbrögð Brad Banducci, æðsta yfirmanns Woolworths, hafa verið furðuleg. Ónægja hans með spurningar um samkeppnismál sýndi að fyrirtækin væru ekki vön því að þurfa að svara spurningum.
Hinn 59 ára Banducci hefur starfað hjá Woolworths í þrettán ár, þar af átta við stjórnvölin. Í tilkynningu til áströlsku kauphallarinnar sagði að hann myndi láta af störfum í september. Þá var haft eftir stjórnarformanninum Scott Perkins að sagan myndi sýna að Banducci hefði verði einn af bestu leiðtogum fyrirtækisins.
This is what happened when Four Corners asked Woolworths CEO Brad Banducci about the lack of competition in the Australian grocery market.
— ABC News (@abcnews) February 19, 2024
Watch the #4Corners documentary tonight: https://t.co/dDRYGLaw2i pic.twitter.com/bsrJD9IETB