Forystufólk Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar, öðru nafni breiðfylkingin, kom saman til fundar með Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara klukkan níu í morgun. Góður gangur hefur verið í viðræðunum undanfarna daga.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að þrátt fyrir það hefjist atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir hjá ræstingarfólki innan Eflingar að óbreyttu klukkan fjögur í dag. Hún voni hins vegar að það muni sjást til lands í viðræðunum fyrir kvöldið.
„Það eru ýmis mál sem á eftir að leysa. Sum hver mjög mikilvæg. Ef það gengur vel hjá okkur í dag þá vonandi og mögulega einhvern tíma í kvöld getum við verið komin yfir ána og upp á bakkann,“ segir Sólveig Anna.
Fulltrúar breiðfylkingarinnar fengu í gær kynningu á því sem ríkisstjórnin er tilbúin til að gera til að liðka um fyrir hófsömum kjarasamningum til fjögurra ára með það að markmiði að minnka verðbólgu hratt og þar með lækka vexti. Sólveig Anna segir hins vegar mikilvægt að sveitarfélögin komi einnig að málum.

Þar hefur samkvæmt heimildum verið rætt um að hluti gjaldskrárhækkana verði dreginn til baka, bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla verði brúað og skólamáltíðir verði gjaldfrjálsar.
Sólveig Anna segir samningaviðræðum hafa miðað vel eftir að snurða hljóp á þráðinn vegna deilna um forsenduúrræði samninga á föstudag í þar síðustu viku.
„Ég tel að það hvað Efling gat unnið hratt varðandi að fáverkfallsboðun, og við vorum og erum tilbúin með verkfalls atkvæðagreiðslu, hafi sannarlega haft mikið að segja.“
Atkvæðagreiðslan stendur enn þá til eða hvað?
„Hún á að hefjast í dag klukkan fjögur. Mögulega gerist eitthvað áður en klukkan slær fjögur,“ segir formaður Eflingar.

Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins segir að hægt verði að ganga frá nýjum samningum á næsta einum til tveimur sólarhringum að því gefnu að sveitarfélögin komi óskipt að málum. Stefnt væri að fundi með forystu þeirra í dag.
„Þau verða að átta sig á sinni ábyrgð því það liggur alveg fyrir að ávinningur sveitarfélaga af þeirri leið sem við erum að fara hér er gríðarlegur. Hann er miklu, miklu meiri heldur en nokkurn tíma það atriði sem hér er undir. Margfalt meiri. Þannig að þetta er einhver pólitík sem þarna er og þarf bara að leysa úr,“ segir Vilhjálmur.
Óánægja hjá sveitarfélögunum
Samkvæmt heimildum fréttastofunnar stendur það helst í meirihlutanum í Kópavogi og á Akureyri undir forystu Sjálfstæðismanna og mörgum öðrum smærri sveitarfélögum að samþykkja fríar skólamáltíðir næstu fjögur árin. Sú aðgerð myndi helst gagnast millitekjufólki og yrði samkvæmt heimildum fréttastofu að mestu fjármögnuð af ríkinu.
Innan þessara sveitarfélaga gætir nokkurrar óánægju með að hugmyndin um fríar skólamáltíðir hafi ekki borist þeim til eyra fyrr en nýlega. Margar aðrar aðgerðir sveitarfélaga gætu komið í stað þessarar lækkunar. Reynslan af loforðum stjórnvalda um að standa undir kostnaði við málaflokka hjá sveitarfélögunu væri ekki góð.

Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er eins og forysta breiðfylkingarinnar bjartsýn á að hægt verði að ná samningum á næstu sólahringum. Búið væri að fara yfir stærstu málin þótt enn stæðu önnur mál út af sem þyrfti að ræða. Aðkoma sveitarfélaganna skipti miklu máli varðandi framhaldið.
„Sveitarfélögin lýstu því yfir strax í upphafi viðræðna að það væri þeirra sýn að mikilvægt væri að styðja við markmið einmitt þessara samninga. Lýstu meðal annars yfir að þau væru tilbúin til að endurskoða sínar gjaldskrár. Þannig að ég treysti því að það samtal gangi vel,“ sagði Sigríður Margrét Oddsdóttir í morgun.
Verslunarmenn sem hafa sagt sig úr breiðfylkingunni koma til fundar með Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara klukkan þrjú í dag.
Fréttin var uppfærð kl 13:43.