Toppliðið hélt sigurgöngunni áfram gegn Alberti og félögum 4. mars 2024 21:44 Albert Guðmundsson spilaði allan leikinn í kvöld. Francesco Scaccianoce/Getty Images Genoa, lið Alberts Guðmundssonar, mátti þola 2-1 tap gegn toppliði Inter á San Siro í ítölsku A-deildinni í fótbolta í kvöld. Inter hefur verið á fljúgandi siglingu undanfarna mánuði og liðið hafði unni ellefu leiki í röð í öllum keppnum fyrir leik kvöldsins. Inter tapaði síðast stigum í ítölsku deildinni þann 29. desember á síðasta ári þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn einmitt Genoa, þar sem Albert lagði upp mark Genoa. Alberti og félögum tókst þó ekki að stöðva sigurgöngu Inter í þetta skipti. Heimamenn fóru með 2-0 forystu inn í hálfleikshléið eftir mörk frá Kristjan Asllani og Alexis Sanchez, en sá síðarnefndi lagði upp fyrra markið og skoraði svo sjálfur úr vítaspyrnu. Johan Vasquez minnkaði svo muninn fyrir Genoa snemma í síðari hálfleik, en nær komust gestirnir ekki og niðurstaðan varð 2-1 sigur Inter. Inter trónir því enn á toppi ítölsku deildarinnar með 72 stig eftir 27 leiki, 15 stigum meira en Juventus sem situr í öðru sæti. Genoa situr hins vegar í 12. sæti með 33 stig og siglir nokkuð lygnan sjó um miðja deild. Ítalski boltinn
Leik lokið: Ísland - Ítalía 71-95 | Ítalir ekki í vandræðum þrátt fyrir fjarveru lykilmanna Körfubolti
Leik lokið: Ísland - Ítalía 71-95 | Ítalir ekki í vandræðum þrátt fyrir fjarveru lykilmanna Körfubolti