Með mjög skömmum fyrirvara, eftir að Carlos Sainz annar af ökumönnum Ferrari þurfti að fara í bráðaaðgerð vegna botnlangabólgu, settist Bearman undir stýri í bíl ítalska risans og sýndi mikla yfirvegun og færni á einni af mest krefjandi brautum hvers árs í Formúlu 1 í Sádi-Arabíu.
Hinn 18 ára gamli Bearman, sem keppir einnig í Formúlu 2 mótaröðinni samhliða því að vera einn af varaökumönnum Ferrari í Formúlu 1, gerði gott mót í sínum fyrstu tímatökum og rétt missti af sæti í lokahluta þeirra.
Hann ræsti í ellefta sæti þegar í kappaksturinn var komið og steig varla feilspor í keppninni sjálfri þar sem að hann endaði í sjöunda sæti og vann inn sín fyrstu stig á Formúlu 1 ferlinum.
Frammistaða sem varpar á honum kastljósinu og er ljóst að þarna er um að ræða ökumann sem hafa þarf góðar gætur á í framtíðinni í Formúlu 1. Hafandi fengið smjörþefinn af mótaröðinni, vill Bearman bara meira og það fljótt.
Bretinn ungi hefur auga á öðru af ökumannssætum hjá liði Haas, sem er eins konar systurlið Ferrari, fyrir næsta tímabil en nú þegar hefur Bearman tekið þátt í æfingum og prófunum með liðinu.
„Ég hef kynnst liðinu aðeins í gegnum þessar æfingar og ég hlakka til að byggja upp sambönd mín við liðsmenn þess í framhaldinu og að fá vonandi fleiri tækifæri í bílnum innan brautar,“ segir Bearman í viðtali við Sky Sports.“ Með því opnast vonandi tækifæri á því að fá varanlegt sæti í Formúlu 1 fyrir tímabilið 2025. Það yrði frábært.“
Núverandi ökumenn Haas-liðsins, reynsluboltarnir Kevin Magnussen og Nico Hulkenberg, renna báðir út á samningi hjá liðinu eftir yfirstandandi tímabil. Takist Bearman að heilla forráðamenn liðsins er ljóst að möguleikar hans á sæti fyrir hann í Formúlu 1 á næsta ári.