Stöð 2 Sport
Á Skiptiborðinu fylgjast sérfræðingarnir með öllu því helsta sem gerist í leikjum kvöldsins í Subway-deild karla í körfubolta. Bein útsending hefst klukkan 19:10 og leikirnir verða svo gerðir upp um leið og þeim lýkur, eða í Tilþrifunum upp úr klukkan 21. Mikið er í húfi nú þegar styttist í úrslitakeppnina enda eru bara tveir leikir eftir þegar þessari umferð lýkur.
Subway-deildin 1
Þau sem vilja frekar horfa á staka leiki í Subway-deildinni, í stað Skiptiborðsins, geta stillt á Subway-rásirnar. Bein útsending frá leik Hattar og Hauka hefst klukkan 19:10.
Subway-deildin 2
Bein útsending frá leik Tindastóls og Þórs Þorl. í Subway-deild karla hefst klukkan 19:10.
Stöð 2 Sport 2
Klukkan 17.45 mætast West Ham og Freiburg í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum í Evrópudeildinni. Staðan er 1-0 Freiburg í vil.
Klukkan 20.00 mætast Brighton og Roma í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum í Evrópudeildinni. Staðan er 4-0 Roma í vil.
Stöð 2 Sport 2
Klukkan 17.45 mætast Lille og Sturm Graz í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum í Sambandsdeildinni. Staðan er 3-0 Lille í vil. Hákon Arnar Haraldsson spilar með Lille.
Klukkan 20.00 mætast Fiorentina og Maccabi Haifa í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum í Sambandsdeildinni. Staðan er 4-3 Fiorentina í vil.
Stöð 2 Sport 5
Bein útsending frá leik Álftanes og Stjörnunnar í Subway-deild karla hefst klukkan 19:10. Hér er á ferðinni baráttan um Garðabæ en um leið hörð barátta um sæti úrslitakeppninni þar sem bæði lið eru á svipuðum slóðum í töflunni.
Vodafone Sport
Klukkan 17.45 mætast Rangers og Benfica í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum í Evrópudeildinni. Staðan er 2-2 eftir fyrri leikinn.
Klukkan 20.00 mætast Liverpool og Sparta Prag í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum í Evrópudeildinni. Staðan er 5-1 Liverpool í vil.
Klukkan 23.05 er leikur Detroit Red Wings og Arizona Coyotes í NHL-deildinni í íshokkí.