Morgunlatte Kristján Friðbert Friðbertsson skrifar 14. mars 2024 06:31 Ég er lítið fyrir kaffi, en í þýsku má finna orðið „morgenlatte“ (latte að morgni) notað með sama hætti og „morningwood“ (morgunviður) er notað á ensku. Vísar sumsé til þess þegar hinn hangandi húsfélagi hreðjanna reynist árrisull. Laglegur limaburður laumar sér svosem inn á áhugasvið margra, hvort sem áhuginn reynist mestur á þeim stórum eða smáum, grönnum eða breiðum. Morgunviður hefur samt aðra merkingu hjá mér. Ég tel það nánast nauðsynlega byrjun hvers dags að vakna með myndarlegan morgunvið í seilingarfjarlægð. Mæli eindregið með því fyrir alla. Já, endilega byrja daginn á því að berja beinvaxið birki augum, nú eða íturvaxna eik. Hvoru tveggja flokkast sem harðviður, hafi fólk áhuga á slíku. Sá viður er þó ekki jafn harður og hinn afríski rauði járnviður (Lophira alata). Sá er svo harður að handverksfólk sem handfjatlar hann lendir hreinlega í vandræðum. Því líklega engin tilviljun að alþjóðlega ber hann einfaldlega nafnið „ekki“. Reynir nokkur í garðinum var aldeilis ánægður að sjá mig um daginn! Blekkingar Ekki er þó allt sem sýnist í þessum málum. Munurinn á mjúkvið og harðvið snýst ekki um hversu mikla örvun tréð hefur hlotið. Ekkert tré vaknar að morgni sem harðviður, en breytist svo í mjúkvið yfir daginn. Nafnið er ekki heldur trygging á stífleika. Mjúkviður getur t.d. verið harðari en sumar harðviðartegundir. Til einföldunar köllum við lauftré harðvið og barrtré mjúkvið. Mjúkviðurinn er oft betri í að minnka svifryk og draga úr vindstyrk, sem kemur sér vel hérlendis. Algengustu tegundirnar á Íslandi eru greni, fura og lerki. Hvort sem viðurinn er harður eða mjúkur, lágvaxinn eða hávaxinn, þykkur eða þunnur bæta tré allt umhverfi. Óháð því hvort fólk kýs að hafa þau t.d. umkringd af þéttum runna, eður ei. Meira að segja fjöruferð er skemmtilegri með rekavið. Trjágróður stórbætir m.a. loftgæði og lýðheilsu. Borgarskógar, líkt og finna má t.d. í Öskjuhlíð og Elliðaárdal, eru auk þess sérlega mikilvægir fyrir fuglalíf og innihalda auðugra lífríki öllum til góða. Grænvöxtur Rannsóknir virðast sýna að græni liturinn geri okkur gott og vafalítið var það liturinn „kópavogsgrænn“ sem gerði „gott að búa í Kópavogi“. Græn svæði eru þó miklu meira en liturinn einn og mikilvægi þess að græn svæði séu ávallt skammt undan, aðgengileg öllum, verður seint ofmetið. Hvert skal halda? Hinn græni Kópavogur býður sem dæmi upp á trjásafn, rósagarð, aldingarð, o.fl. í Meltungu, Kópavogsmegin í Fossvoginum. Svæði Skógræktarfélags Kópavogs við Guðmundarlund er einnig mikið notað til útivistar. Skógræktarfélag Garðabæjar hefur m.a. ræktað upp skemmtilegt svæði í Smalaholti, rétt við Vífilsstaðavatn. Sjálf Vífilsstaðahlíðin er svo hluti af stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins: Heiðmörk. Heiðmörk, ásamt Esjuhlíðum o.fl., er í umsjá Skógræktarfélags Reykjavíkur. Sama áhugamannafélag og byggði upp frábært svæði við Rauðavatn. Reykjavíkurborg hefur svo aukið við útivistarmöguleikana þar. Nær miðborginni standa svo gamli góði Hljómskálagarðurinn ásamt t.d. Klambratúni alltaf fyrir sínu. Grasagarðurinn og raunar Laugardalurinn allur er líka tilvalinn til heimsókna. Í miðbæ Hafnarfjarðar gleður Hellisgerði ávallt. Nær jaðri bæjarins finnst svo Höfðaskógur, fullur af ævintýrum. Hann tilheyrir útivistarsvæðinu við Hvaleyrarvatn, sem Skógræktarfélag Hafnarfjarðar hefur sinnt af miklum dugnaði í áratugi. Þar finnum við einnig suðurenda „græna trefilsins“, sem tengir Helgafell í Hafnarfirði við Esjuhlíðar, gegnum hin ýmsu útivistarsvæði. Trefillinn liggur m.a. gegnum Hamrahlíðarskóg á Úlfarsfelli. Skemmtilegt útivistarsvæði sem Skógræktarfélag Mosfellsbæjar hefur, ásamt öðru, ræktað upp. Sama félag, auk skógræktarfélaga Kjalarness og Kjósarsýslu, sér svo um helming skógræktarsvæðisins Fossá í Hvalfirði á móti Skógræktarfélagi Kópavogs. Utan höfuðborgarsvæðisins eru svo endalausir möguleikar á ýmiss konar útivist. Áðurnefnt svæði við Fossá Í Hvalfirði auk nærliggjandi skógar í Brynjudal eru svokallaðir Opnir Skógar. Sem stendur tilheyra því fyrirkomulagi einnig 15 aðrir skógar víða um land. https://www.skog.is/opinn-skogur/ Njótum Á Íslandi búum við við stórkostlega fallega, en plöntufátæka, náttúru. Landið allt býður upp á hin ýmsu tækifæri til útivistar og á flestum þéttbýlisstöðum má finna fjöldan allan af hverfisgörðum og öðrum grænum svæðum. Einnig skal grípa hvert tækifæri til að heimsækja og minnast á Skrúð í Dýrafirði og Lystigarðinn á Akureyri. Fyrir mitt leyti langaði mig bara að hvetja alla til að njóta náttúrunnar og endilega vera dugleg að leggja rækt við hana. Sama hvaða augum við kjósum að sjá hana. Jafnt innan byggðar sem utan. Í landi með litla, oft unga, hægvaxta og viðkvæma gróðurþekju munar um allt. Hvort sem það er í húsagarði, almenningsgarði, skóglendi eða annars staðar. Höfundur er tölvunarfræðingur og plöntunörd. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skógrækt og landgræðsla Mest lesið Falsfréttastjóri RÚV dýpkar holuna sína Einar Steingrímsson Skoðun Ákall um breytingar Gissur Freyr Gissurarson Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun Laun kvenna og karla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Verkin sem ríkisstjórnin verður dæmd af Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Vanfjármögnun vísindanna Magnús Hallsson,Styrmir Hallsson Skoðun Veit sem sagt Grímur betur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvernig talar maður við tölvur og hafa vélar rökhugsun? Henning Arnór Úlfarsson Skoðun Ekki er allt sem sýnist Ólafur Helgi Marteinsson Skoðun Þegar barn óttast önnur börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ekki er allt sem sýnist Ólafur Helgi Marteinsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir skrifar Skoðun Vilji til að rjúfa kyrrstöðu í húsnæðiskreppunni Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Grænt ál frá Íslandi er mikilvægt fyrir sjálfstæða Evrópu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar barn óttast önnur börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Falsfréttastjóri RÚV dýpkar holuna sína Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um breytingar Gissur Freyr Gissurarson skrifar Skoðun Veit sem sagt Grímur betur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig talar maður við tölvur og hafa vélar rökhugsun? Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Laun kvenna og karla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Verkin sem ríkisstjórnin verður dæmd af Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Open Letter to new HÍ Rector re Disability Support Hópur starfsfólks og nemenda við HÍ skrifar Skoðun Vanfjármögnun vísindanna Magnús Hallsson,Styrmir Hallsson skrifar Skoðun Kárhóll og Kína: Þegar vísindi verða pólitísk tól Davíð Michelsen skrifar Skoðun Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur – Hvernig manneskjur viljum við vera? Hulda Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórn gegn fjölskyldusameiningum? Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðið deyr í myrkrinu Heiðar Örn Sigurfinnsson skrifar Skoðun Færni til framtíðar Álfheiður Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldi Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Lestu Gaza Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun Ný fjármálaáætlun - tækifæri til að efna loforðin um bætt geðheilbrigði Sandra B. Franks skrifar Skoðun 10 ár og bull í lokin Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Opið bréf til atvinnuvegaráðherra: 48 daga, nei takk Gísli Gunnar Marteinsson skrifar Skoðun Á nú að opinbera það að ég veit í rauninni ekki neitt? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Háskóli Höfuðborgarinnar, ekki Íslands Arent Orri Claessen,Gunnar Ásgrímsson skrifar Skoðun Hrynur sjávarútvegur? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Iftar, agape og Eid: Kristnir og múslimar við sama borð Hilal Kücükakin Kizilkaya,Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Bætt skipulag fyrir stúdenta Aðalsteinn Haukur Sverrisson ,Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Frá sögulegum minjum til sviðsettrar upplifunar: Um sanngildi og Disneyvæðingu Sólheimasands Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Staðan á húsnæðismarkaði: Offramboð af röngu meðaltali Egill Lúðvíksson skrifar Sjá meira
Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun
Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir skrifar
Skoðun Grænt ál frá Íslandi er mikilvægt fyrir sjálfstæða Evrópu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar
Skoðun Open Letter to new HÍ Rector re Disability Support Hópur starfsfólks og nemenda við HÍ skrifar
Skoðun Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur – Hvernig manneskjur viljum við vera? Hulda Steingrímsdóttir skrifar
Skoðun Ný fjármálaáætlun - tækifæri til að efna loforðin um bætt geðheilbrigði Sandra B. Franks skrifar
Skoðun Iftar, agape og Eid: Kristnir og múslimar við sama borð Hilal Kücükakin Kizilkaya,Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Frá sögulegum minjum til sviðsettrar upplifunar: Um sanngildi og Disneyvæðingu Sólheimasands Guðmundur Björnsson skrifar
Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun