Lífið

Zara tók sjálfur með gosinu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Zara Larsson myndaðist vel í gosbirtunni.
Zara Larsson myndaðist vel í gosbirtunni.

Sænska ofurstjarnan Zara Larsson nýtti sér stund milli stríða vel á laugardagskvöldinu þegar það byrjaði að gjósa. Hún tók nokkrar sjálfur af sér með gosinu af toppi tónlistarhússins Hörpu þar sem hún var með tónleika það kvöldið.

Sjálfuna birti hin sænska Zara svo á samfélagsmiðlinum Instagram. „Í beinni,“ skrifaði söngkonan við færsluna sem hefur vakið gríðarlega athygli. Ekki á hverjum degi sem poppstjörnur berja rauðan eldgosalitaðan himinn augum.

Zara hélt tónleika í Eldborgarsal í Hörpu en þetta er alls ekki fyrsta skiptið sem sænska poppstjarnan kemur hingað til lands. Árið 2019 hitaði hún upp fyrir breska popparann Ed Sheeran. 

Þá tók hún upp tónlistarmyndband á landinu og kom vitavörðum á Akranesi á óvart svo fátt eitt sé nefnt. Zara greinilega elskar Ísland því áður hafði hún haldið tónleika hér á landi með pompi og prakt árið 2017. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.