Eldgos og jarðhræringar
1 2 3 4 5 6 … 131 ›
Verði að koma í ljós hvort fergjun Njarðvíkuræðar heldur Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Almannavörnum, segir að þrátt fyrir að gosin hafi öll verið á svipuðum slóðum komi upp nýjar áskoranir í hvert sinn sem gýs. Innlent 21.11.2024 07:36
Hraun rann yfir Grindavíkurveg Hraun rann yfir Grindavíkurveg upp úr klukkan half fimm í nótt og nálgast það nú Njarðvíkuræð. Áætlað hraunrennsli á umræddri hrauntungu er um 300 metrar á klukkustund. Innlent 21.11.2024 07:11
Miðlarnir úti í heimi ekki eins áhugasamir og fyrir ári Fjallað er um eldgosið sem hófst í gærkvöldi í fjölmiðlum erlendis, en þó í talsvert minna mæli en fyrir tæpu ári síðan. Innlent 21.11.2024 03:24
Kort af staðsetningu gossprungunnar Lengd gossprungunnar þar sem gýs norðan Grindavíkur er áætluð um tveir og hálfur kílómetri. Syðri endi hennar er við Sýlingarfell. Sérfræðingar Veðurstofunnar telja gosið minna í upphafi en síðasta gos í ágúst. Innlent 21.11.2024 01:21
Áttu ekki von á eldgosi í nóvember Vísindamenn á Veðurstofu Íslands sögðust síðdegis á þriðjudag telja ólíklegt að nægur þrýstingur yrði búinn að byggjast upp í kvikuhólfinu undir Svartsengi til að koma af stað eldgosi í nóvember, kosningagosi. Önnur varð sannarlega raunin því rúmum sólarhring síðar er eldgos hafið norðan Grindavíkur, það sjöunda á árinu og það tíunda síðan eldgosahrinan á svæðinu hófst í mars 2021. Innlent 21.11.2024 01:07
Rýming í Bláa lóninu og Grindavík gengur vel Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum segir að rýming gangi vel í bæði Grindavík og Bláa lóninu. Miðað við upplýsingar um staðsetningu eldgossins og hraunflæði séu engir innviðir eða vegir í bráðri hættu akkúrat núna. Innlent 21.11.2024 00:10
Stukku út í glugga og biðu eftir eldgosinu Jóhanna Ósk Þrastardóttir býr á Ásbrú í Reykjanesbæ í um tuttugu kílómetra fjarlægð frá eldgosinu sem hófst klukkan 23:14 í kvöld. Innlent 20.11.2024 23:51
Eldgos er hafið Eldgos hófst við Sundhnúksgígaröðina klukkan 23:14 í gær, 20. nóvember eftir að aukin skjálftavirkni mældist á svæðinu á ellefta tímanum og merkja mátti breytingu á þrýstingi við borholur í Svartsengi. Búið er að virkja neyðarstig almannavarna og samhæfingarmiðstöð. Innlent 20.11.2024 23:07
Ólíklegt að gjósi í nóvember Vísindamenn Veðurstofu Íslands telja ólíklegt að nægur þrýstingur verði búinn að byggjast upp í kvikuhólfinu undir Svartsengi til að koma af stað eldgosi í nóvember. Vísbendingar um að hægt hafi á landrisi gætu verið tilkomnar vegna geimveðurs. Innlent 19.11.2024 15:10
Grindvíkingar geta nú gerst „hollvinir“ seldra húsa sinna Þeir sem selt hafa hús sín í Grindavík til Þórkötlu geta frá og með deginum í dag gert samning um afnot af húsinu, gegn greiðslu. Um er að ræða svokallaðan hollvinasamning sem byggir á samstarfi Þórkötlu við seljendur húsa í Grindavík og snýr að umhirðu, viðhaldi og eftirliti með húsunum. Viðskipti innlent 19.11.2024 11:50
Nokkuð öflugur skjálfti í Bárðarbungu Jarðskjálfti af stærðinni 3,5 varð í Bárðarbungu skömmu fyrir klukkan fimm í dag. Innlent 16.11.2024 17:22
Myndaveisla: Grindvíkingar komu saman ári eftir rýmingu Grindvíkingar héldu samverustund í Grindavíkurkirkju í kvöld þar sem ár er liðið frá því að stór kvikugangur myndaðist undir Grindavík og bærinn var rýmdur. Innlent 10.11.2024 23:58
„Erfiðir tímar iðulega undanfari betri tíma“ „Ég sagði í upphafi að ég gæti ekki sett mig í ykkar spor, ekkert okkar getur það, en ég get sagt í einlægni að í mínu lífi hafa erfiðir tímar iðulega verið undanfari betri tíma.“ Innlent 10.11.2024 21:21
„Ég skildi ekki konuna eina eftir heima í þessum látum“ Tíundi nóvember verður aldrei gleðidagur í augum Grindvíkinga sem þurftu að yfirgefa heimili sín á þessum degi fyrir ári. Þetta segir bæjarstjórinn í Grindavík en bæjarbúar minntust tímamótanna í dag. Bæjarbúar voru þó glaðir að geta komið saman í kaffi í bænum í dag í tilefni af tímamótunum. Innlent 10.11.2024 21:01
Ár frá rýmingu í Grindavík: „Með mestu hamförum sem riðið hafa yfir Ísland“ Í dag er ár liðið frá því að stór kvikugangur myndaðist undir Grindavík og bærinn var rýmdur. Hamfarirnar eru einar þær mestu í sögunni að sögn bæjarstjóra sem kveðst bjartsýnn á framtíð bæjarins þrátt fyrir að jarðhræringum sé ekki lokið. Forseti Íslands mun sækja samverustund í Grindavíkurkirkju í kvöld. Innlent 10.11.2024 13:26
Stærsti skjálftinn við Öskju frá ársbyrjun 2022 Jarðskjálfti að stærð 3,0 varð klukkan 08:13 í morgun á austurbakka Öskjuvatns, 1,6 kílómetra frá Víti sem er stærsti sprengigígurinn í Öskju. Þetta er stærsti skjálftinn sem hefur mælst á svæðinu síðan í janúar 2022. Innlent 10.11.2024 10:14
Reikna með fimmtán milljarða kostnaði vegna tjóns Náttúruhamfaratrygging Íslands áætlar að kostnaður vegna jarðskjálftanna í grennd við Grindavík sem urðu tilefni til þess að bærinn var rýmdur þann 10. nóvember í fyrra muni að endingu nema á sextánda milljarð króna. Innlent 8.11.2024 15:10
Lítil skjálftavirkni eftir hrinuna í byrjun viku Lítil skjálftavirkni hefur verið á Sundhnúksgígaröðinni í kjölfar skjálftahrinunnar sem varð aðfararnótt síðastliðins mánudags. Heildarrúmmál kviku undir Svartsengi er nú um það bil 80 prósent af því sem safnaðist áður en fór að gjósa 22. ágúst síðastliðinn. Innlent 8.11.2024 14:44
Ekki vanhæfur til að rannsaka banaslysið Lögreglustjórinn á Suðurnesjum var ekki vanhæfur til þess að fara með rannsókn banaslyss sem varð í Grindavík í janúar á þessu ári. Þetta er niðurstaða Ríkissaksóknara. Innlent 7.11.2024 13:29
Mögulega merki um að lítið magn kviku hafi verið á ferð Kvikusöfnun heldur áfram á Reykjanesskaga en síðdegis í dag höfðu engir skjálftar mælst frá því að smáskjálftahrina varð á milli Sýlingarfells og Stóra-Skógfells í nótt. Innlent 4.11.2024 17:38
Þétt skjálftavirkni í nótt en ekki nægur kraftur fyrir kvikuhlaup Viðbragð Veðurstofunnar var virkjað í stuttan tíma í nótt vegna mögulegs kvikuhlaups. Almannavörnum var tilkynnt um málið. Um hálftíma síðar var þó komið í ljós að ekki var um kvikuhlaup að ræða. Nokkuð þétt skjálftavirkni var á milli tvö og þrjú við Stóra-Skógfell og Sýlingarfell. Innlent 4.11.2024 07:08
„Sjáum fram á að geta rekið sveitarfélagið eitthvað fram eftir næsta ári“ Grindavíkurbær stefnir í greiðsluþrot á næsta ári verði ekki komið til móts við bæjarsjóð að mati Grindavíkurnefndar. Bæjarstjóri segir óvissu um framlengingu ýmissa stuðningsúrræða ótæka. Innviðaráðherra segir margar stórar ákvarðanir um áframhaldandi stuðning bíða nýrrar ríkisstjórnar. Innlent 1.11.2024 13:10
Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Grindavíkurnefnd segir hættu á að bærinn fari í greiðsluþrot á næsta ári verði ekki brugðist við. Bærinn geti verið rekinn í 1,5 til tveggja milljarða halla á næsta ári. Bæjarstjórn Grindavíkur skorar á þingmenn að samþykkja lagabreytingar sem varða afkomu og húsnæðismál Grindvíkinga sem allra fyrst og á yfirstandandi þingi. Innlent 1.11.2024 08:28
Líkur aukast á eldgosi í lok nóvember Út frá nýju hættu mati Veðurstofunnar vegna kvikusöfnunar í Svartsengi má reikna með að líkur fari að aukast á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Reykjanesskaga í lok nóvember. Landris og kvikusöfnun hefur verið á stöðugum hraða síðustu vikur. Innlent 29.10.2024 16:30
Heilt ár af samfelldu landrisi í Svartsengi Nú um helgina er ár frá því að landris hófst í Svartsengi. Landrisið hófst af miklum krafti 27. október í fyrra og hefur innstreymi kviku inn í jarðskorpuna nú verið samfellt í heilt ár. Innlent 26.10.2024 14:16
Ógnarstór loftsteinaárekstur eins og áburður fyrir líf á jörðinni Vísbendingar eru um að loftsteinaárekstur sem var margfalt stærri en sá sem grandaði risaeðlunum hafi hjálpað lífverum með því að dreifa næringarefnum um jörðina. Talið er að höfin hafi soðið og stærsta flóðbylgja sem vitað er um hafi fylgt árekstrinum. Erlent 25.10.2024 15:36
Stuðningslán leysi ekki vanda fyrirtækja í Grindavík Birgitta Rán Friðfinnsdóttir bæjarfulltrúi Miðflokksins í Grindavík er ekki ánægð með frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármála- og efnahagsráðherra um stuðningslán til fyrirtækja í Grindavík. Birgitta segir lán ekki leysa vanda fyrirtækjanna og kallar eftir alvöru aðgerðum. Innlent 23.10.2024 21:27
Neðri óvissumörkum náð í byrjun nóvember Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram með svipuðum hraða og síðustu vikur. Jarðskjálftavirkni hefur aukist lítillega síðustu daga og búast má við að neðri óvissumörkum á rúmmáli kviku verði náð í byrjun nóvember. Innlent 22.10.2024 17:19
Grindavík eins og „Tsjernobyl án kommúnisma“ Grindavíkurbær var opnaður fyrir almenningi klukkan sex í morgun. Bandarískir ferðamenn líkja bænum við Tsjernobyl án kommúnisma en formaður framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur viðurkennir að mistök hafi verið gerð við vinnslu bæklings með mikilvægum upplýsingum um öryggisatriði. Innlent 21.10.2024 20:00
„Hefði kannski verið heppilegra að allt væri komið“ Formaður Grindavíkurnefndar segir nefndina hafa lagt áherslu á að setja upp aðvörunarskilti inni í bænum. Hann tekur ekki nema að litlu leyti undir gagnrýni lögreglustjóra um skort á upplýsingagjöf en ugglaust hefði verið heppilegra að komin væru skilti fyrir utan bæinn. Innlent 21.10.2024 16:21